Íþróttir

true

Leikmenn Víkings og stuðningsmenn leggja allt undir

Gríðarleg stemning er meðal stuðningsmanna knattspyrnuliðs Víkings í Ólafsvík fyrir síðustu umferðina. Lokaleikur mótsins verður spilaður á morgun, laugardag þegar Víkingur mætir Stjörnunni á Samsung vellinum í Garðabæ klukkan 14. Víkingsliðið er í fallhættu og í harðri baráttu við Fylki sem mætir KR á sama tíma í Frostaskjólinu. Stuðningsmenn Víkings ætla að fjölmenna á leikinn…Lesa meira

true

Pálína í Snæfell og Berglind framlengir

Snæfell hefur samið við landsliðskonuna Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Pálína er 29 ára gömul og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Haukum á síðasta tímabili, skoraði 10,9 stig að meðaltali í leik og hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár. Sem leikmaður Hauka…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn valinn í U21 árs landsliðið

Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður ÍA, hefur verið valinn í lokahóp U21 árs landsliðs karla sem tekur á móti Skotum miðvikudaginn 5. október og Úkraínumönnum þriðjudaginn 11. október næstkomandi. Frá þessu er greint á heimasíðu knattspyrnufélagsins. Eru það tveir síðustu leikir liðsins í undankeppni fyrir Evrópukeppnina 2017 sem fram fer í Póllandi. Fyrir leikina er Ísland í…Lesa meira

true

Nýr keppnishringur tekinn í notkun á móti hnefaleikafélagsins

Laugardaginn 8. október nk. mun Hnefaleikafélag Akraness, sem er aðili að Íþróttabandalagi Akraness, standa fyrir hnefaleikamóti í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mótið hefst klukkan 17:00. Á mótinu verður vígður nýr keppnishringur Hnefaleikafélagsins á Akranesi en hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Hringurinn er sérstakur að því leyti að hann er ekki upphækkaður eins…Lesa meira

true

Vatnsmótið stóð undir nafni

Vatnsmótið í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi laugardaginn 24. september. Mótið er innanfélagsmót kylfinga í Golfklúbbnum Leyni og eitt elsta innanfélagsmót klúbbsins. Dregur það nafn sitt af miklu vatnsveðri sem var þegar mótið var haldið í fyrsta sinni árið 1970. Stóð mótið sannarlega undir nafni að þessu sinni. Þegar kylfingar höfðu leikið fyrstu…Lesa meira

true

Heilladísirnar kvöddu Alla og Sigga fyrir síðustu sérleiðina

Síðasta umferð Íslandsmótsins í rallý var ekin laugardaginn 24. september. Bifreiðaríþróttaklúbbur Reykjavíkur stóð fyrir keppninni en ekið var um Kaldadal í Borgarfirði og Skjaldbreiðarveg, sem er línuvegur frá Kaldadal yfir að Gullfossi. Eru þetta langar og krefjandi leiðir sem reyna mikið á bíla og áhafnir. Einungis tíu áhafnir mættu til leiks en mikil spenna var…Lesa meira

true

Skagakonur eru fallnar eftir tap gegn Blikum

Skagakonur heimsóttu Breiðablik í 17. umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag. Lið ÍA var sem kunnugt er á botni deildarinnar fyrir leikinn og hefði þurft á sigri að halda gegn sterku liði Blika, auk hagstæðra úrslita í leikjum liðanna fyrir ofan, til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Bæði…Lesa meira

true

Umdeilt atvik kostaði Víking Ó. stig í fallbaráttunni

  Víkingur Ó. tók á móti KR í 21. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Ólafsvíkurliðið hefur átt erfitt uppdráttar á síðari hluta móts en með hagstæðum úrslitum hefði liðið getað gulltryggt sæti sitt í deildinni. Svo varð hins vegar ekki, því gestirnir sigruðu með einu marki gegn engu. Víkingar voru sterkari á…Lesa meira

true

Góður síðari hálfleikur skóp sigur Skagamanna

ÍA tók á móti Breiðabliki í 21. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Skagamenn höfðu að litlu að keppa í þessum næstsíðasta leik sumarsins, siglda lygnan sjó um miðja deild. Blikar voru hins vegar í mikilli baráttu við Stjörnuna um 2. sæti deildarinnar og þar með Evrópusæti. Leiknum lauk engu að síður með…Lesa meira

true

Haustmót eldri púttara í Borgarbyggð

Pútthópur eldri borgara í Borgarbyggð endaði sumarið á Haustmóti að Hamri 13. september. Um 20 eldri púttar hafa æft að kappi í sumar og framfarir hafa verið góðar hjá mörgum einstaklingum. Haustmótið var þriggja daga keppni og gilti samanlagður árangur. Leikið var 6., 8., og 13. september. Í kvennaflokki varð Lilja Ólafsdóttir hlutskörpust með 203…Lesa meira