Íþróttir

true

Akranesmeistaramót í sundi

Á sunnudaginn fór Akranesmeistaramót Sundfélags Akraness fram á Jaðarsbökkum. Þetta er fyrsta mót tímabilsins og tóku 34 krakkar þátt á mótinu. Keppendur voru 11 ára og eldri. Akranesmeistarar urðu þau Ágúst Júlíusson og Una Lára Lárusdóttir en þau áttu stigahæstu sundin á mótinu. Akranesmeistarar í aldursflokkum urðu Ágúst og Una Lára í flokki 15 ára…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir botnliði Þróttar

  Skagamenn mættu botnliði Þróttar í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Fyrri leik liðanna snemma sumars lauk með 1-0 sigri Þróttar. Skagamenn náðu ekki að hefna fyrir tapið á sunnudag því aftur vann Þróttur, að þessu sinni með þremur mörkum gegn einu. Heimaliðið hefur nú möguleika á að bjarga…Lesa meira

true

Vildu tvær vítaspyrnur en fengu hvoruga

Víkingur Ó. mætti Fylki í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Búast mátti við hörkuleik í Árbæ Reykjavíkur þar sem bæði lið bítast um að halda sæti sínu í deildinni. Víkingar voru í 9. sæti, tveimur stigum fyrir ofan Fylki í næstneðsta sæti. Þegar lokaflautan gall var niðurstaðan sú að heimaliðið hafði sigur með…Lesa meira

true

Slæm byrjun varð Skagakonum að falli

ÍA mætti Val í Pepsi deild kvenna í kanttspyrnu síðastliðinn föstudag. Leikið var á Hlíðarenda. ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar. Með sigri hefði liðið hleypt mikilli spennu í fallbaráttuna. En það varð ekki því Valur hafði sigur með tveimur mörkum gegn engu í miklum baráttuleik. Valskonur byrjuðu af miklum krafti og komust yfir strax…Lesa meira

true

Vefmyndavél komið fyrir á Garðavelli

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að koma upp vefmyndavél við golfvöllinn Garðavöll á Akranesi. Með tilkomu hennar geta kylfingar kynnt sér aðstæður á fyrsta teig vallarins hvenær sem er, hvar sem þeir eru staddir. Aðgangur að vefmyndavélinni er á heimasíðu Golfklúbbsins Leynis, www.leynir.is. Ofarlega til hægri á síðunni er hægt að smella á…Lesa meira

true

Víkingskonur töpuðu öðru sinni fyrir Grindavík

Víkingur Ó. og Grindavík mættust öðru sinni í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu á miðvikudag. Fyrri leiknum, sem leikinn var í Ólafsvík, lauk með fjögurra marka sigri gestanna og var á brattann að sækja fyrir Víkingskonur fyrir aðra viðureign liðanna. Lokatölur á miðvikudag urðu þær sömu og í fyrri leiknum, Grindavík…Lesa meira

true

Skotfimi ekki síður fyrir konur en karla

Í síðustu viku var boðið á konukvöld á æfinga- og keppnissvæði Skotfélags Akraness við rætur Akrafjalls. Þá var konum sérstaklega boðið að mæta og kynna sér skotíþróttina. Guðrún Hjaltalín skipulagði kvöldið og segir hún tilganginn hafa verið að sýna fleirum hversu skemmtileg íþrótt skotfimi er. „Þetta er í fyrsta skipti sem við hóum konum sérstaklega…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir toppliði Stjörnunnar

ÍA mætti Stjörnunni í 15. umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikið var á Akranesvelli. Búast mátti við erfiðum leik fyrir Skagakonur þar sem liðin voru á sitt hvorum enda deildarinnar, Stjarnan á toppnum en ÍA á botninum. Lokatölur leiksins voru í takt við stöðu liðanna í deildinni, gestirnir úr Garðabænum sigruðu með…Lesa meira

true

Faxaflóasund frá Reykjavík til Akraness

Laugardaginn 3. september syntu þrettán krakkar úr Sundfélagi Akraness hið árlega Faxaflóasund. Synt var frá Reykjavík til Akraness, samtals 21 kílómetri og skiptust krakkarnir á að synda. Meðaltími hvers og eins ofan í sjónum er 15 til 30 mínútur og er þá skipt og næsti tekur við. Þegar Langisandur nálgast stökkva allir ofan í og…Lesa meira

true

Víkingur Ó. fékk skell í fyrsta leik úrslitakeppninnar

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu hófst laugardaginn 3. september síðastliðinn. Víkingur Ó. hafnaði sem kunnugt er í þriðja sæti B riðils og mætti því liði Grindvíkinga, sem lauk riðlakeppninni í efsta sæti B riðils. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Víkingskonur áttu á brattann að sækja stærstan hluta leiksins gegn sterku liði Grindvíkinga. Gestirnir komust yfir…Lesa meira