Íþróttir

true

Þrír leikmenn framlengja samninga við meistaraflokk ÍA

Þeir Albert Hafsteinsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson og Þórður Þorsteinn Þórðarson hafa allir framlengt samninga sína við ÍA út leiktímabilið 2018.  Þessir ungu leikmenn hafa sýnt það og sannað að þeir eru tilbúnir í að spila í efstu deild og eiga framtíðina fyrir sér. „Það er mikið ánægjuefni að búið sé að framlengja samninga við þessa…Lesa meira

true

Fjórði kylfingurinn fór holu í höggi

Ekkert lát virðist ætla að verða á því að kylfingar fari holu í höggi á Garðavelli á Akranesi í sumar. Skessuhorn greindi frá því 20. júlí síðastliðinn að þrír kylfingar hefðu farið holu í höggi í mánuðinum. Föstudaginn 29. júlí síðastliðinn bættist Ingveldur Bragadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðan í hóp hinna lánssömu þegar hún fór…Lesa meira

true

Birgir Leifur og Valdís Þóra á sterkum mótum um helgina

Birgir Leifur Hafþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni kepptu bæði á næst sterkustu atvinnumótaröðum Evrópu í golfi í nýliðinni viku. Birgir Leifur keppti á áskorendamótaröðinni sem fram fór í Svíþjóð og Valdís Þóra á Let Access mótaröðinni sem fram fór í Sundsvall í Svíþjóð. Þau náðum bæði fínum árangri.…Lesa meira

true

Skagakonur náðu í mikilvægt stig

ÍA nældi í mikilvægt stig í botnbaráttu Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu þegar liðið gerði jafntefli við Þór/KA í gær. Leikurinn var sá ellefti í sumar og fór fram á Akranesvelli. Var þetta jafnframt fyrsti leikur Skagakvenna undir stjórn hjónanna Steindóru Steinsdóttur og Kristins H. Guðbrandssonar, en þau tóku nýverið við þjálfun liðsins af Þórði…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði fyrir ÍBV

Á Ólafsvíkurvelli fór í gær fram leikur Víkings og ÍBV í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Bæði lið hafa verið í basli í deildinni að undanförnu en bæði byrjuðu þau mótið vel. Leikurinn endaði með 1-0 sigri ÍBV. Fyrsta mark og eina mark leiksins kom eftir fimm mínútna leik. Derby Carrillo, markmaður ÍBV,…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Fjölni

Á Fjölnisvelli í Grafarvogi fór fram leikur Fjölnis og ÍA í gær í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart á tímabilinu og eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Skagamenn hafa einnig komið mörgum á óvart en fyrir tímabilið spáðu margir Skagamönnum falli. Þeir hafa hins vegar spilað vel á undanförnu…Lesa meira

true

Bandarískur framherji í Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Flenard Whitfield um að leika með liðinu í Domino’s deild karla á vetri komanda. Flenard er 26 ára gamall Bandaríkjamaður, rúmir tveir metrar á hæð, eitt hundrað kíló að þyngd og leikur stöðu framherja. Hann kemur frá Detroit í Michigan-fylki og lék með Western Michigan háskólanum á námsferli sínum þar…Lesa meira

true

Hlynur Bæringsson í landsliðshóp Íslands

Í ágúst og september mun íslenska karlalandsliðið í körfubolta leika í undankeppni fyrir Evrópumótið sem fram fer á næsta ári. Íslendingar lentu í riðli með Belgíu, Sviss og Kýpur í undankeppninni en hópurinn sem mun leika leikina sex í undankeppninni var tilkynntur á dögunum. Það eru sextán körfuboltamenn sem munu taka þátt í verkefninu og…Lesa meira

true

Ólympíuleikarnir hefjast í kvöld

Ólympíuleikarnir í Rio de Janeiro hefjast formlega í kvöld klukkan 23:00 með setningarathöfn leikanna og skrúðgöngu. Þar ganga íþróttamenn og fulltrúar frá hverju þátttökulandi með fána sinnar þjóðar inn á Maracana leikvanginn í Rio. Í samræmi við hefð Ólympíuleikanna munu Grikkir ganga fyrstir inn á völlinn en gestgjafarnir, Brasilíumenn síðastir. Aðrar þjóðir ganga inn á…Lesa meira

true

Birgir Leifur og Valdís Þóra keppa á sterkum mótaröðum

Birgir Leifur Hafþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni keppa nú bæði á næst-sterkustu atvinnumótaröðum Evrópu í golfi. Birgir Leifur hóf leik í gær á Áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð og Valdís Þóra hóf leik í fyrradag á Let Access mótaröðinni sem fram fer í Sundsvall í Svíþjóð. Birgir Leifur fór…Lesa meira