Íþróttir

true

Austin Bracey kveður Hólminn

Körfuknattleiksmaðurinn Austin Magnús Bracey mun ekki leika með Snæfelli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á næsta vetri. Hann hefur nú samið við Tindastól. Austin gekk til liðs við Stykkishólmsliðið árið 2014 og var einn af lykilmönnum liðsins á síðasta keppnistímabili þar sem hann skoraði 16,3 stig að meðaltali í leik.Lesa meira

true

Framlög til afreksíþrótta fjórfaldast

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns voru undirritaðir samningar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands síðastliðinn fimmtudag. Samningarnir gilda til þriggja ára og kveða á um stóraukið framlag íslenska ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi. Framlagið mun hækka í áföngum úr 100 milljónum á fjárlögum síðasta árs í 400 milljónir á…Lesa meira

true

Víkingur styrkir sig fyrir lokasprettinn

Nú er Pepsi deild karla í knattspyrnu rúmlega hálfnuð. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga í Ólafsvík, gaf það út þegar félagsskiptaglugginn var opnaður að hann ætlaði að ná sér í leikmenn. Víkingur fékk til sín Martin Svensson frá Víkingi frá Reykjavík um það leyti sem glugginn var opnaður en nú hefur liðið bætt við sig tveimur…Lesa meira

true

Guðmundur Böðvar aftur í ÍA

Um síðustu helgi náðu Skagamenn og Fjölnir samkomulagi um að Guðmundur Böðvar Guðjónsson myndi klára tímabilið á lánssamningi hjá Skagamönnum. Guðmundur Böðvar er 27 ára gamall og hóf að leik með ÍA árið 2006. Hann lék alls 155 leiki fyrir Skagamenn áður en hann færði sig yfir til Fjölnis árið 2013 en hann aðstoðaði félagið að…Lesa meira

true

Tvö Íslandsmet á Unglingalandsmóti

Tvo Íslandsmet voru slegin á Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið var í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Eva María Baldursdóttir HSK setti nýtt Íslandsmet í hástökki 13 ára stúlkna þegar hún fór yfir 1,61 metra og bætti fyrra Íslandsmet um einn sentímetra. Eva María segist hafa stefnt að þessu lengi og var mjög ánægð með árangurinn. Þá setti…Lesa meira

true

Steindóra og Kristinn taka við ÍA

Þórður Þórðarson óskaði nýverið eftir því að láta af störfum þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA af persónulegum ástæðum. Ágúst Valsson aðstoðarþjálfari Þórðar mun einnig láta af störfum á sama tíma. Gengið hefur verið frá samningum við Kristinn H. Guðbrandsson og Steindóru Steinsdóttur um að taka við þjálfun liðsins út keppnistímabilið. Kristinn er 46 ára íþróttafræðingur með…Lesa meira

true

Unglingalandsmót hefst í dag

Um verslunarmannahelgina verður 19. Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi. Um 1.500 keppendur eru skráðir á mótið og búist er við um 10- 15 þúsund manns í Borgarnes mótsdagana. Keppni hefst í fyrramálið með golfkeppni svo hefst keppni í körfubolta um hádegið. Alls verður keppt í 14 keppnisgreinum. Mjög fjölbreytt afþreyingardagskrá er í boði og opin…Lesa meira

true

Unglingalandsliðsmaður til Snæfells

Bakvörðurinn Árni Elmar Hrafnsson hefur skrifað undir eins árs samning við Snæfell og mun leika með liðinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á vetri komanda. Árni er fæddur árið 1998, uppalinn hjá Fjölni í Grafarvogi og er þessa stundina á leið til Makedóníu með U18 landsliði karla sem varð Norðurlandameistarar í Finnlandi fyrr í sumar. Árni…Lesa meira

true

Hlupu yfir Arnarvatnsheiði á 12 tímum

Síðastliðinn laugardag lauk 10 ára fjallvegahlaupaverkefni Stefáns Gíslasonar í Borgarnesi með hlaupi yfir Arnarvatnsheiði úr Miðfirði suður í Borgarfjörð. Þetta var fimmtugasta hlaupið í verkefninu og jafnframt það langlengsta, en samtals mældist vegalengdin 81,31 km. Hlaupinu luku Stefán og félagar hans á rúmum 12 klukkustundum og var vel fagnað af vinum og vandamönnum við vegamótin…Lesa meira

true

Eldri borgarar öttu kappi í golfi

Síðasta fimmtudag fór fram púttmót á Garðavelli milli eldri borgara á Akranesi og Borgarnesi. Púttvöllurinn er 18 holu völlur og keppt var í tveimur hópum. Töluverður fjöldi karla og kvenna tóku þátt í mótinu og ríkti mikil gleði í hópnum en Félag eldri borgara á Akranesi og nágrennis bar sigur úr býtum að þessu sinni. Þetta…Lesa meira