
Baráttan var æsispennandi um fyrsta sætið á Íslandsmóti Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) í pútti 60 ára og eldri. Mótið fór fram í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag. Fjórir keppendur voru þar jafnir í karlaflokki á 66 höggum og réðust úrslit í bráðabana. Eftir bráðabanann lá fyrir að Aðalbergur Þórarinsson hafði tryggt sér fyrsta sætið, Hafsteinn…Lesa meira








