Íþróttir

true

Karaktersigur Skallagríms

Skallagrímskonur unnu góðan sigur á Breiðabliki, 60-48, þegar liðin mættust í sjöttu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Blikar byrjuðu leikinn betur en Skallagrímskonur sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á upphafsfjórðunginn og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 19-16. En annar fjórðungur Skallagrímskvenna var afleitur,…Lesa meira

true

Naumt tap gegn Derby

Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skallagríms tapaði naumlega gegn Englandsmeisturum Derby County í hörkuleik í Unglingadeld UEFA. Leikið var á Víkingsvelli í Reykjavík í gærkvöldi. Bretarnir voru sterkari í upphafileiks og komust yfir á 16. mínútu. Louie Sibley fékk langa sendingu fram vinstri kantinn, fór upp að endalínu og sendi laglega sendingu út í vítateiginn á Festy Ebosele…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR, 57-81, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í Stykkishólmi í gær. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og unnu að lokum sannfærandi sigur. KR skoraði fyrstu stig leiksins og leiddi framan af fyrsta leikhluta, en Snæfellskonur voru þó…Lesa meira

true

Mannbjörg á Breiðafirði

Mannbjörg varð þegar Blíða SH sökk norður af Langeyjum á Breiðafirði um hádegið í gær. Þrír voru um borð. Báturinn datt út úr tilkynningarskyldu stjórnsvöðvar Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og skömmu síðar barst frá honum neyðarskeyti. Þá sást einnig neyðarblys á lofti. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út þegar í stað, sem og sjóbjörgunarsveitir. Skip og…Lesa meira

true

ÍA og Derby mætast í kvöld

Leikur 2. flokks karla hjá ÍA og Derby Country í Unglingadeild UEFA fer fram í kvöld, miðvikudaginn 6. nóvember. Leikið verður á Víkingsvelli í Reykjavík og mun dómarinn flauta leikinn á kl. 19:00. Um er að ræða fyrri leik ÍA í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Liðið vann sem kunnugt er sigur á Levadia Tallin frá Eistlandi,…Lesa meira

true

Snæfell fær Val í Geysisbikarnum

Dregið var í 16-liða úrslit karla og kvenna í Geysisbikarnum í dag. Kvennalið Snæfells fær Íslands- og bikarmeistara heim í Stykkishólm en Skallagrímskonur sitja hjá í fyrstu umferð. Alls voru tólf lið í hattinum en einungis átta lið dregin upp. Njarðvík fær nágranna sína í Keflavík í heimsókn, Haukar fara norður og spila gegn Tindastóli…Lesa meira

true

Úr leik í bikarnum

Skallagrímur og Snæfell töpuðu bæði Leikið var í 32 liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur léku í gærkvöldi og máttu bæði lið sætta sig við tap í sínum viðureignum. Borgnesingar töpuðu fyrir Sindra í Borgarnesi og Snæfell beið lægri hlut gegn Þór Ak. í Stykkishólmi. Spennuleikur í Borgarnesi Skallagrímsmenn höfðu…Lesa meira

true

Töpuðu heima

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar þegar þær mættu Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi og lauk leiknum með sigri Hauka, 56-61. Snæfell byrjaði leikinn betur og komst í 12-7 áður en Haukar jöfnuðu metin í 12-12 seint í fyrsta leikhluta. Snæfellskonur áttu lokaorðið í upphafsfjórðungnum og leiddu með…Lesa meira

true

Sigur eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímskonur gerðu góða ferð til Keflavíkur í gærkvöldi, þegar þær sigruðu lið Keflvíkinga, 70-75, í Domino‘s deild kvenna í körfunkattleik. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina lungann úr leiknum, en Keflvíkingar voru nálægt því að vinna upp afgerandi forskot í lokafjóðrungnum. Leikurinn var því æsispennandi undir lokin, en fór svo að lokum að Borgnesingar höfðu betur. Jafnt var…Lesa meira

true

Tap fyrir austan

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hetti, 95-73, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var austur á Egilsstöðum. Snæfell byrjaði leikinn betur og leiddi fyrstu mínúturnar. Þeir skoruðu fyrstu sjö stigin en eftir það tóku heimamenn við sér og voru komnir yfir þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Þeir áttu síðan…Lesa meira