Íþróttir

true

Íslandsmeistaramótið í motocross á Akranesi

Næsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í motocross verður haldið á Akranesi á morgun, laugardaginn 16. júlí. Gestgjafar mótsins eru félagar í Vélhjólaíþróttafélagi Akraness og keppt verður í Akrabraut, sem staðsett er upp undir Akrafjalli. Mótið hefst klukkan 10:20 og áætlað er að keppni ljúki kl. 16:30. Vélhjólaáhugamönnum er bent á að ókeypis aðgangur er fyrir áhorfendur.Lesa meira

true

Skagakonur fá til sín norskan sóknarleikmann

Skagakonur hafa styrkt leikmannahópinn fyrir komandi átök í Pepsi deild kvenna. Cathrine Dyngvold er 27 ára norskur sóknarleikmaður sem hefur gengið til liðs við ÍA. Hún lék síðast með liði Kopparbergs/Göteborg  í sænsku úrvalsdeildinni. Skagakonur sitja á botni Pepsi deildar kvenna með aðeins eitt stig og hafa skorað eitt mark í sumar. Það hefur því vantað upp…Lesa meira

true

Víkingur sigraði Fram

Víkingur Ó tók á móti Fram í 1. deild kvenna í knattspyrnu í gær. Dró til tíðinda á 25. mínútu þegar heimakonur fengu vítaspyrnu. Samira Suleman fór á punktinn sendi boltann í netið framhjá markverði Fram. Var það hennar áttunda mark í jafn mörgum leikjum í deildinni í sumar. Fehima Líf Purisevic innsiglaði síðan 2-0…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir toppliði Blika

ÍA tók á móti sterku liði Breiðabliks í áttundu umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Liðin hafa háð sína baráttu í sumar á sitt hvorum enda deildarinnar, ÍA var fyrir leikinn á botninum en Breiðablik á toppnum. Því var ljóst að Skagakonur ættu erfiðan leik fyrir höndum og máttu þær að lokum sætta…Lesa meira

true

Íslandsmót yngri flokka hefst á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 14. júlí, hefst að vindási í Borgarnesi Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum 2016. Keppni hefst kl. 9.00 með forkeppni í fjórgangi unglinga og stendur yfir til sunnudagsins 17. júlí. Gestgjafar mótsins eru félagar í Hestamannafélaginu Skugga í Borgarnesi. Alls bárust mótsstjórn rúmlega 530 skráningar í Íslandsmótið og því ætti að verða margt…Lesa meira

true

Skagakonur mæta Blikum í kvöld

Áttunda umferð Pepsi deildar kvenna verður spiluð í heild sinni í kvöld. Skagakonur mæta liði Breiðabliks á Akranesvelli klukkan 19:15. Skagakonur hafa verið í erfiðleikum í deildinni í sumar og eru á botni deildarinnar með eitt stig. Breiðablik er hins vegar í efsta sæti deildarinnar með 17 stig. Leikurinn í kvöld verður því erfiður fyrir Skagakonur…Lesa meira

true

Björn Bergmann genginn til liðs við Molde

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við norska úrvalsdeildarliðið Molde til þriggja ára. Björn verður þar með annar Íslendingurinn sem semur við Molde á árinu en Eiður Smári Gudjohnsen samdi við liðið fyrr á árinu. Björn Bergmann kemur frítt til Molde en hann lék síðast með liði Wolverhampton Wanderers í ensku b-deildinni. Hann hefur verið að…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu sinn þriðja leik í röð

Skagamenn er á miklu skriði þessa dagana en þeir unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir mættu Breiðabliki í tíundu umferð Pepsi deild karla í gærkvöldi. Skagamenn sigruðu leikinn sem fram fór á Kópavogsvelli 1 – 0 með marki Garðars Gunnlaugssonar. Með sigrinum hoppuðu Skagamenn upp um tvö sæti og eru nú í áttunda…Lesa meira

true

Snæfellsbæingur vann til verðlauna á Norðurlandamóti Öldunga

Í byrjun þessa mánaðar fór Norðurlandamót öldunga í frjálsum íþróttum fram í Óðinsvéum í Danmörku. Alls kepptu 535 á mótinu frá öllum Norðurlandaþjóðunum. Sjö keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd á mótinu og var einn þeirra Kristófer Sæland Jónasson úr Snæfellsbæ. Kristófer, sem er 81 árs, keppti í spjótkasti og kastþraut. Þess má geta að Kristófer…Lesa meira

true

Tvö laus pláss í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum

Stjórn Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum auglýsir laus til umsóknar tvö liðspláss í deildinni á komandi tímabili, veturinn 2017. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið sem etja kappi í sex greinum hestaíþrótta á fimm kvöldum í febrúar og mars. Hvert lið sendir þrjá keppendur til leiks í hverja…Lesa meira