
Styrktarmót Borgnesingsins og kylfingsins Bjarka Péturssonar verður haldið á Hamarsvelli í Borgarnesi næstkomandi sunnudag kl. 9:00. Bjarki útskrifaðist á dögunum úr Kent State háskólanum í Bandaríkjunum eftir fjögurra ára nám þar sem hann lék golf með liði skólans. Styrktarmótið er haldið nú fyrir komandi átök haustsins, en hann keppir á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í september…Lesa meira








