Íþróttir

true

Snæfell vann í toppslagnum

Snæfell hafði betur gegn Hvíta riddaranum þegar liðin mættust í toppbaráttuleik í sjöundu umferð B-riðils í fjórðu deild karla í Stykkishólmi í gærkvöldi. Um var að ræða fjörugan leik en fyrir viðureignina voru bæði lið taplaus og með jafn mörg stig. Engin mörk komu í fyrri hálfleik þrátt fyrir ágætis færi. Það var ekki fyrr…Lesa meira

true

Bjarki keppir á Evrópumóti áhugamanna

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson hefur í dag leik á Evrópumóti áhugamanna, sem er eitt sterkasta mót ársins. Hann ásamt fyrrum skóla- og liðsfélaga sínum úr bandaríska háskólagolfinu, Gísla Sveinbergssyni, munu leika á Diamond Country vellinum í Austurríki. Flestir af bestu áhugakylfingum heims eru á meðal keppenda í mótinu. Leiknir verða fjórir hringir á mótinu sem hefst,…Lesa meira

true

ÍA tapaði í toppbaráttuleik

Skagastelpur þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Þróttar R. þegar liðin mættust í sjöttu umferð fyrstu deildar kvenna í Laugardalnum í gærkvöldi. Munaði einungis einu stigi á liðunum fyrir viðureignina og mátti því búast við hörku leik. Það voru heimastúlkur sem byrjuðu mun betur og voru staðráðnar í að endurtaka ekki leikinn frá…Lesa meira

true

Bjarki í landsliðshópnum í golfi

Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness hefur verið valinn í landsliðshóp Íslands sem mun keppa á Evrópumeistaramótinu í liðakeppni. Gregor Brodie, afreksstjóri Golfsambands Íslands, og Ólafur Björn Loftsson, aðstoðarafreksstjóri, tilkynntu hópinn í dag. Alls völdu þeir leikmenn í fjögur landslið sem taka þátt fyrir Íslands hönd á EM. Um er að ræða karla- og kvennalandslið auk…Lesa meira

true

Súrt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Hetti/Hugin í botnbaráttu liðanna þegar þau mættust fyrir austan í 8. umferð þriðju deildar í fótbolta á laugardag. Leikurinn var fjörugur í alla staða og leikmenn á skotskónum. Fyrsta mark leiksins kom frá heimamönnum á 32. mínútu þegar Petar Mudresa kom sínum mönnum yfir. Borgnesingar létu sér…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótið í holukeppni fór fram á Akranesi

Íslandsmeistaramótið í holukeppni í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi um liðna helgi. Sigurvegarar á mótinu urðu þau Saga Traustadóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbi Keili. Alls voru 55 keppendur skráðir til leiks þar af 32 karlar og 23 konur. Boðið var upp á mikla spennu í kvennaflokki þar sem úrslit…Lesa meira

true

Valdís Þóra upp um tvö sæti

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbi Leyni lék Ladies European Thailand meistaramótið á fimm höggum yfir pari og endaði í 54. sæti á mótinu sem lauk aðfaranótt sunnudags. Valdís spilaði fyrsta mótsdag á 72 höggum eða á pari vallarins. Dagur tvö gekk ekki eins vel sjá Skagakonunni þar sem hún spilaði á þremur höggum yfir…Lesa meira

true

Arnar Smári aftur til Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Borgnesinginn Arnar Smára Bjarnason um að spila með liðinu í 1. deild karla næsta vetur. Arnar Smári er 19 ára og uppalinn Skallagrímsmaður og spilar stöðu bakvarðar. Hann hefur verið með félaginu undanfarin tímabil en fór til ÍR á miðri síðustu leiktíð í Reykjavík þar sem hann spilaði með unglingaflokki…Lesa meira

true

Víkingur tapaði á heimavelli

Víkingur Ó. þurfti að sætta sig við tap þegar liðið tók á móti Fram í 8. umferð fyrstu deildar í gær á Ólafsvíkurvelli. Strax á sjöttu mínútu fengu Víkingsmenn á sig víti. Michael Newberry missti boltann klaufalega frá sér rétt fyrir utan eigin teig. Tiagi Fernandes hjá liði Fram, lét sér ekki segjast, náði í…Lesa meira

true

Þrír tapleikir í röð hjá ÍA

ÍA tapaði gegn HK í nýliðaslag þegar liðin mættust í 10. umferð karla í Pepsi Max deildinni í gær. Bæði lið komu sér upp úr 1. deildinni fyrir ári síðan þar sem ÍA var efst að tímabilinu loknu og HK-ingar næstefstir og liðin því vel kunnug hvor öðru. Leikurinn fór fram á Akranesvelli. Upphafsmínúturnar voru…Lesa meira