Íþróttir

true

Hlupu yfir Arnarvatnsheiði á 12 tímum

Síðastliðinn laugardag lauk 10 ára fjallvegahlaupaverkefni Stefáns Gíslasonar í Borgarnesi með hlaupi yfir Arnarvatnsheiði úr Miðfirði suður í Borgarfjörð. Þetta var fimmtugasta hlaupið í verkefninu og jafnframt það langlengsta, en samtals mældist vegalengdin 81,31 km. Hlaupinu luku Stefán og félagar hans á rúmum 12 klukkustundum og var vel fagnað af vinum og vandamönnum við vegamótin…Lesa meira

true

Eldri borgarar öttu kappi í golfi

Síðasta fimmtudag fór fram púttmót á Garðavelli milli eldri borgara á Akranesi og Borgarnesi. Púttvöllurinn er 18 holu völlur og keppt var í tveimur hópum. Töluverður fjöldi karla og kvenna tóku þátt í mótinu og ríkti mikil gleði í hópnum en Félag eldri borgara á Akranesi og nágrennis bar sigur úr býtum að þessu sinni. Þetta…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu í fallbaráttuslag

Skagakonur mættu FH í tíundu umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Kaplakrika í Hafnarfirði. Um fallbaráttuslag var að ræða, en ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar með fjögur stig. Gestgjafarnir úr hafnarfirði voru í 8. sæti með sjö stig. Sigur ÍA hefði því getað lift liðinu upp fyrir KR…Lesa meira

true

Aðalsteinn og Sigurður leiða Íslandsmótið

Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fór fram dagana 22. og 23. júlí í Skagafirði. Það var Bílaklúbbur Skagafjarðar sem stóð fyrir keppninni en þessi árvissa keppni vekur bæði áhuga og eftirtekt rallýáhugafólks þar sem skipulag og framkvæmd er ávallt til eftirbreytni. Það var því margt um manninn, tæplega tuttugu áhafnir voru mættar til leiks auk…Lesa meira

true

Fullt af laxi að stökkva í lóninu

„Þetta var meiriháttar, bleikjan tók og tók, skemmtilegir fiskar,“ segir Þór Hauksson prestur Árbæjarkirkju eftir að hafa veitt hverja bleikjuna af annarri í Hvolsá í Dölum. Allt tveggja til þriggja punda bleikjur. „Maður hefur beðið eftir þessu augnabliki lengi. Fiskarnir tóku vel og það var fjör að glíma við þá hvern af öðrum. Þetta stóð…Lesa meira

true

Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um helgina

Dagana 29. júlí til 1. ágúst fer fram unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 21. sinn sem mótið er haldið. Mótin eru fjölmenn og glæsileg fjölskyldu- og íþróttahátíð en þar koma saman þúsundir barna og unglinga ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri…Lesa meira

true

Birgir Leifur varð Íslandsmeistari

Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson, sem leikur fyrir Golfkúbb Kópavogs og Garðabæjar, sigraði Íslandsmótið í golfi sem var haldið dagana 21.-24. Júlí á Jaðarsvelli á Akureyri. Með sigrinum varð Birgir Leifur sá kylfingur sem oftast hefur orðið Íslandsmeistari í höggleik, alls sjö sinnum og bætti þar með met sem Björgvin Þorsteinsson setti árið 1977 en Úlfar…Lesa meira

true

Martin Svensson til liðs við Víking

Ejub Purisevic þjálfari Víkings gaf það út á dögunum að hann ætlaði að bæta við sig þremur til fjórum leikmönnum áður en félagsskiptaglugginn lokar í byrjun ágúst. Ejub hefur nú fengið til liðs við Víking einn leikmann. Martin Svensson er 26 ára gamall Dani sem spilar á kantinum. Hann hefur á ferli sínum leikið með…Lesa meira

true

Víkingur tapaði á heimavelli

Víkingur Ólafsvík tók á móti Breiðabliki í Pepsi deild karla í gær. Gestirnir voru ívið ákveðnari í sínum aðgerðum á meðan heimamenn lágu töluvert til baka. Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik en staðan var 0-0 þegar að dómarinn flautaði til leikhlés. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik og Víkingar áttu í…Lesa meira

true

Lengsta sigurganga Skagamanna í efstu deild í 13 ár

Í dag mættu Skagamenn liði ÍBV á Akranesvelli í tólftu umferð Pepsi deildar karla. Skagamenn sem byrjuðu mótið illa og voru aðeins með fjögur stig eftir sjö umferðir hafa snúið við blaðinu í undanförnum leikjum. Þeir sigruðu lið ÍBV í dag 2-0 og hafa þeir því unnið fimm leiki í röð. Þetta er lengsta sigurganga…Lesa meira