Íþróttir

true

Martin Svensson til liðs við Víking

Ejub Purisevic þjálfari Víkings gaf það út á dögunum að hann ætlaði að bæta við sig þremur til fjórum leikmönnum áður en félagsskiptaglugginn lokar í byrjun ágúst. Ejub hefur nú fengið til liðs við Víking einn leikmann. Martin Svensson er 26 ára gamall Dani sem spilar á kantinum. Hann hefur á ferli sínum leikið með…Lesa meira

true

Víkingur tapaði á heimavelli

Víkingur Ólafsvík tók á móti Breiðabliki í Pepsi deild karla í gær. Gestirnir voru ívið ákveðnari í sínum aðgerðum á meðan heimamenn lágu töluvert til baka. Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik en staðan var 0-0 þegar að dómarinn flautaði til leikhlés. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik og Víkingar áttu í…Lesa meira

true

Lengsta sigurganga Skagamanna í efstu deild í 13 ár

Í dag mættu Skagamenn liði ÍBV á Akranesvelli í tólftu umferð Pepsi deildar karla. Skagamenn sem byrjuðu mótið illa og voru aðeins með fjögur stig eftir sjö umferðir hafa snúið við blaðinu í undanförnum leikjum. Þeir sigruðu lið ÍBV í dag 2-0 og hafa þeir því unnið fimm leiki í röð. Þetta er lengsta sigurganga…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Íslandsmóti yngri flokka í hestaíþróttum

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum fór fram í Borgarnesi um síðustu helgi. Veðrið á mótinu var prýðisgott og mótið heppnaðist almennt vel. Vestlendingar stóðu sig vel á mótinu og ber þar hæst árangur Mána Hilmarssonar sem varð Íslandsmeistari í ungmennaflokki í fimmgangi á hestinum Presti frá Borgarnesi með heildareinkunnina 6,83. Í sama flokki lenti Konráð…Lesa meira

true

Magnús Þór aftur til liðs við Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Magnús Þór Gunnarsson um að leika með félaginu í Domino‘s deild karla næsta vetur. Á síðasta tímabili skoraði hann 10 stig, tók 2,2 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í 20,4 mínútum í leik fyrir Keflvíkinga. Magnús er reynslumikill leikmaður, 35 ára gamall, margfaldur Íslandsmeistari sem hefur lengst af…Lesa meira

true

Valdís Þóra fer vel af stað á Íslandsmótinu í golfi

Íslandsmótið í golfi fór af stað í gær á Jaðarsvelli á Akureyri. Mun standa til sunnudagsins 24. júlí. Mikil spenna er í kvennaflokki þessa stundina. Eftir fyrsta daginn var staðan sú að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Golfklúbbi Reykjavíkur leiddi kvennaflokkinn en hún lék á 70 höggum, einu undir pari. Valdís Þóra Jónsdóttir í Golfklúbbnum Leyni…Lesa meira

true

Breytingar á þjálfarateymi Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur gengið frá nýjum samningi við Finn Jónsson um þjálfun karlaliðs félagsins til 2019, eða næstu þriggja keppnistímabila. Finnur hefur þjálfað meistaraflokk Skallagríms frá því í ársbyrjun 2015. Hann var við stjórnvölinn þegar liðið tryggði sér sæti í Domino’s deild karla á nýjan leik eftir sigur í oddaleik í úrslitaeinvígi við Fjölni í úrslitakeppni 1.…Lesa meira

true

Tveir Snæfellingar í æfingahópnum

Undirbúningur Íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik fyrir Evrópumótið 2017 hefst formlega í dag, miðvikudag 20. júlí. Landsliðsþjálfarateymið hefur boðað 22 leikmenn til æfinga með landsliðinu frá og með deginum í dag, en alls eru 41 leikmaður í æfingahópnum. Æft verður fram að helgi og þá verður hópurinn skorinn niður áður en æfingar hefjast að nýju á…Lesa meira

true

Síðast fullt hús í Frostaskjóli 1987

Bæði karla- og kvennalið ÍA hafa borið sigurorð af erkifjendunum í KR á útivelli í sumar. Er það í fyrsta sinn síðan 1987 sem Skagaliðin tvö sækja fullt hús stiga í Frostaskjóli í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Megan Dunnigan skoraði bæði mörk ÍA þegar liðið vann KR 2-0 í gær. Var það…Lesa meira

true

Skagakonur sigruðu sinn fyrsta leik í efstu deild í 16 ár

Skagakonur léku gegn KR í níundu umferð Pepsi deildar kvenna í gær á KR-vellinum í Vesturbæ Reykjavíkur. Fyrir leikinn höfðu Skagakonur ekki unnið leik í sumar og voru á botninum með eitt stig. Leitin eftir sigri Skagakvenna í úrvalsdeild var orðin býsna löng. Þrátt fyrir að hafa spilað í efstu deild árin 2005 og 2014…Lesa meira