Íþróttir

true

Valdís Þóra keppir á Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni hefur tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi 2.-5. ágúst næstkomandi. Hún er í 17. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar en efstu 25 kylfingarnir á þeim lista fá keppnisrétt á Opna breska. Mótið er eitt af fimm risamótum kvenna sem haldið er á ári hverju. Að þessu sinni…Lesa meira

true

Vítaspyrna í uppbótartíma tryggði sigur Víkings

Víkingur Ó. vann dramatískan sigur á Reykvíkingunum í ÍR þegar liðin mættust í gær í 12. umferð Inkassodeildarinnar. Þetta var síðasti leikur umferðarinnar en ástæðan að hann var spilaður svona seint er sú að Víkingur var að keppa í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í liðinni viku þar sem liðið tryggði sér þátttöku í undanúrslitum. Snæfellingar…Lesa meira

true

Kvennalið Snæfells semur við Heiðu Hlín

Akureyringurinn Heiða Hlín Björnsdóttir hefur samið við Snæfell um að spila með liðinu í Dominos deildinni á komandi tímabili. Heiða var burðarás þegar hún spilaði með Þór Akureyri í fyrstu deildinni á síðasta tímabili þar sem hún skoraði 17 stig, tók 7,1 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í leik. „Við bjóðum hana hjartanlega…Lesa meira

true

Skagasigur á heimavelli

Skagastelpur unnu baráttusigur á Haukum úr Hafnarfirði í fyrsta leik seinni umferðar Inkassodeildar er liðin mættust á Akranesvelli á föstudaginn var. ÍA ásamt Haukum eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar og hvert stig dýrmætt nú þegar líður á tímabilið. Þannig einkenndust upphafs mínútur af mikilli barátta og leikgleði meðal leikmanna beggja liða sem…Lesa meira

true

Íslandsmet slegið á Skallagrímsvelli

Thelma Lind Kristjánsdóttir úr Íþróttafélagi Reykjavíkur sló 36 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti kvenna þegar Kastmót UMSB fór fram við topp aðstæður á Skallagrímsvelli síðastliðinn fimmtudag. Á mótinu var keppt í spjótkasti, kúluvarpi og kringlukasti og lék veðrið við keppendur. Mesta athygli vakti að í kringlukastinu voru skráðir til leiks tveir af fremstu kösturum landsins;…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík kominn í undanúrslit Mjólkurbikarsins

Víkingur Ó. sótti nafna sína í Reykjavík heim þegar liðin mættust í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli og var það komið á hreint áður en liðin mættust að sigurlið viðureignarinnar myndi mæta Breiðabliki í undanúrslitum. Heimamenn áttu fyrstu sókn leiksins og voru töluvert meira með boltann á meðan gestirnir…Lesa meira

true

Völlurinn erfiður á Meistaramóti Leynis

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis á Akranesi fór fram í síðustu viku þar sem 80 klúbbfélagar höfðu skráð sig til leiks. Mótið hófs miðvikudaginn 11. júlí og stóð til laugardags 14. júlí. Keppt var í nokkrum flokkum bæði karla og kvenna á öllum aldri. Aðstæður yfir mótstíma gerðu kylfingum erfitt fyrir á köflum. Klúbbmeistarar þetta árið voru…Lesa meira

true

Skagamenn gáfu toppsætið frá sér

Karlalið ÍA þurfti að sætta sig við tap þegar það sótti Þrótt heim í 11. umferð Inkassodeildarinnar í Laugardalnum síðastliðinn föstudag. ÍA sat fyrir leikinn á toppi deildarinnar og þrjú stig því mikilvæg til að halda efsta sætinu. ÍA byrjaði leikinn tiltölulega vel en missti dampinn eftir því sem leið á leik. Gestgjafarnir nýttu sér…Lesa meira

true

Skagakonur gerðu jafntefli

ÍA gerði jafntefli í fjörugum leik gegn Aftureldingu/Fram í níundu umferð Inkassodeildar kvenna í gær. Fyrir leik skipuðu Skagakonur annað sætið í deildinni og voru búnar að vinna tvo auðvelda sigra í röð og því fullar sjálfstrausts komandi inn í viðureignina. Leikurinn fór fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Vestlendingar byrjuðu leikinn af krafti og strax…Lesa meira

true

Sigur á Ólafsvíkurvelli

Víkingur Ó. nældi sér í þrjú stig þegar liðið vann Fram á heimavelli í 12. umferð Inkassodeildarinnar í gær. Snæfellingar hafa verið á góðri siglingu síðustu vikur enda eru þeir í flottri baráttu í efri hluta deildarinnar, unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum en liðið gerði jafntefli í útileik við Njarðvík í síðustu umferð.…Lesa meira