
ÍA sigraði Leikni R. með einu marki gegn engu í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og kvartaði enginn áhorfanda yfir því, enda gekk á með éljum á Akranesi þennan dag. Eina mark leiksins skoraði Steinar Þorsteinsson á 60. mínútu eftir undirbúning Andra Adolphssonar. Skagamenn mættu ákveðnir…Lesa meira








