Íþróttir

true

Öll Vesturlandsliðin áfram í bikarnum

Leikið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gær og fyrradag. Þrjú Vesturlandslið voru enn með í keppninni áður en umferðin hófst; ÍA, Víkingur Ó. og Kári. Öll sigruðu þau sína leiki og eru því komin áfram í 16 liða úrslit. Næsta umferð bikarsins verður leikin dagana 30. og 31. maí næstkomandi.…Lesa meira

true

Norðurlandamót stúlkna í skák

Norðurlandamót stúlkna í skólaskák fer nú fram á Hótel Borgarnesi. Það hófst á föstudaginn en lýkur í kvöld með verðlaunaafhendingu. Alls taka 33 stúlkur þátt, á aldrinum 8-10 ára, og þar af eru níu íslenskar. Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, setti mótið og lék fyrsta leikinn fyrir Batel Goitom Haile, sem tefldi fyrstu skák við Guðrúnu…Lesa meira

true

Skagamenn sigursælir á Opna Borgarfjarðarmótinu

Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds lauk í gærkvöldi í Logalandi. Að venju var mótið bæði spilað á Akranesi og í Borgarfirði, að þessu sinni með þátttöku 18 para.  Sigurvegarar urðu Skagamennirnir Karl Alfreðsson og Jón Alfreðsson með skor upp á 67,5%. Í öðru sæti urðu Borgfirðingarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Sigurður Einarsson með 54,9%. Sjónarmun á eftir…Lesa meira

true

Syntu til verðlauna og settu met

Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug fór fram í Laugardalslaug um liðna helgi. Tólf keppendur frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu. Sneru keppendur heim með nokkra verðlaunapeninga auk þess sem eitt Akranesmet féll. Sævar Berg Sigurðsson vann til silfurverðlauna í 50 m bringusundi og Atli Vikar Ingimundarson hreppti bronsið í 100 m flugsundi…Lesa meira

true

Þrjú gull og þrjú brons á ÍM – 50

Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akranesi keppti á ÍM -50 um liðna helgi og náði þar frábærum árangri. Hún keppti í 100m og 200m flugsundi og 200m skriðsundi og varð Íslandsmeistari í öllum þessum greinum. Þá vann hún til þriggja bronsverðlauna í boðsundsgreinum. Þannig að afrakstur helgarinnar voru þrjú gull og þrjú brons. Inga Elín…Lesa meira

true

Sló 19 ára gamalt Íslandsmet

Skagamaðurinn Jóhann Ársæll Atlason sló þriðjudaginn 17. apríl sl. 19 ára gamalt Íslandsmet í einum leik í 1. flokki pilta í keilu. Í 1. flokki leika keppendur 17-18 ára. Jóhann spilaði 299 stiga leik í 2. deildinni á Akranesi þennan dag, en hæsta mögulega skor í keilu er 300. Eldra metið í 1. flokki pilta…Lesa meira

true

Valdísi Þóru gekk illa í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 61. sæti á Lalla Meryem Cup mótinu í Marokkó um helgina. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Spilamennska Valdísar var mjög kaflaskipt. Hún lék frábærlega á upphafshringnum en náði sér ekki á strik á næstu þremur hringjum mótsins. Lauk hún leik á 19 höggum yfir pari í…Lesa meira

true

Dregið í Mjólkurbikar karla

Dregið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í hádeginu í dag. Vesturlandsliðin ÍA, Víkingur Ó. og Kári voru öll í pottinum. Drátturinn fór á þá leið að ÍA mætir liði Selfoss á útivelli, Víkingur Ó. heimsækir Hamar í Hveragerði og Kári fær Hött í heimsókn á Akranes. Dráttinn í heild sinni má…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin unnu stórt í bikarnum

Bæði ÍA og Víkingur Ó. léku í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gær, sumardaginn fyrsta. ÍA tók á móti ÍH á Akranesi en Víkingur Ó. heimsótti lið KFG. Bæði unnu Vesturlandsliðin stórsigur og tryggðu sér sæti í næstu umferð bikarsins sem leikin verður dagana í kringum mánaðamótin.   Steinar með fjögur í stórsigri…Lesa meira

true

Efnilegar knattspyrnukonur semja við ÍA

Síðastliðinn föstudag skrifuðu fjórar ungar og efnilegar knattspyrnukonur undir samning við knattspyrnufélag ÍA. Þetta eru þær María Björk Ómarsdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir, Erla Karitas Jóhannesdóttir og Róberta Lilja Ísólfsdóttir. Þær eru fæddar árin 2001 og 2002 og hafa allar spilað mikilvægt hlutverk í hópi meistaraflokks á undirbúningstímabilinu í vetur. Auk þess komu þær Sigrún og…Lesa meira