Íþróttir

true

Kemst Ísland í 16 – liða úrslit EM á morgun?

Ísland lék sinn annan leik á Evrópumótinu í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Leikurinn fór fram á Stade Vélodrome í Marseille. Mikil stemming var hjá Íslendingum á leiknum og sungu þeir og klöppuðu allan leikinn. Báðir íþróttafréttamenn Skessuhorns voru á svæðinu og urðu m.a. vitni að því þegar Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr víti á 40. mínútu.…Lesa meira

true

Gísli og Berglind Íslandsmeistarar í holukeppni

Gísli Sveinbergsson úr golfklúbbnum Keili og Berglind Björnsdóttir úr GR fögnuðu sigri á KPMG-bikarnum, Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni. Þetta eru fyrstu Íslandsmeistaratitlar þeirra í þessari keppni sem fór fram í fyrsta sinn árið 1988. Gísli lagði Aron Snæ Júlíusson úr GKG í úrslitaleiknum 4/3 en góð byrjun Gísla lagði grunninn að sigrinum. Andri Már…Lesa meira

true

Snæfell framlengir samninga við sex leikmenn

Snæfell varð Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna á síðasta tímabili. Sex leikmenn skrifuðu fyrir helgi undir nýjan samning við liðið og ætla því að hjálpa því að verja titilinn á komandi tímabili. Um er að ræða þær Andreu Björt Ólafsdóttur, Önnu Soffíu Lárúsdóttur, Helgu Hjördísi Björgvinsdóttur, Hrafnhildi Magnúsdóttur, Hugrúnu Evu Valdimarsdóttur og Maríu Björnsdóttur. Það eru…Lesa meira

true

AMÍ á Akranesi um næstu helgi

Nú er á lokametrunum undirbúningur fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands, AMÍ, í sundi sem haldið verður helgina 24 – 26. júní á Akranesi. Um er að ræða lágmarkamót sem þýðir að aðeins þeir sem ná ákveðnum lágmörkum keppa á mótinu. Það eru því aðeins bestu sundmennirnir í sínum aldursflokkum sem keppa. „Það eru um 300 keppendur skráðir…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í Skallagrím

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið meðal bestu körfuknattleikskvenna á Íslandi undanfarin ár. Hún hefur nú skrifað undir samning um að spila með gamla uppeldisfélaginu á næstu leiktíð í efstu deild. Sigrún Sjöfn spilaði á síðustu leiktíð með Grindavík í Domino‘s deild kvenna en hún lék tvo leiki með Skallagrími í fyrstu deild kvenna í upphafi…Lesa meira

true

Nýr íþróttafulltrúi ráðinn til ÍA

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir tók á dögunum við stöðu íþróttafulltrúa Íþróttabandalags Akraness. „Hildur Karen hefur gríðarlega mikla þekkingu og reynslu innan íþróttahreyfingarinnar en hún hefur starfað fyrir félagið bæði sem kennari, þjálfari og foreldri. Hún hefur komið víða við innan íþróttabandalagsins m.a. setið í stjórn og varastjórn ÍA til nokkurra ára. Hildur Karen hefur þjálfað sund…Lesa meira

true

Keppt í Akrabraut á miðvikudaginn

Félagsmenn í Vélhjólaíþróttafélagi Akraness tóku þátt á fyrsta mótinu í Íslandsmeistara mótaröðinni í motocross sem fram fór um síðustu helgi á Selfossi. Allir stóðu sig með prýði. Bestum árangri náðu þeir Sveinbjörn Reyr Hjaltason og Jóhann Pétur Hilmarsson sem urðu í 2. og 3. sæti í B-flokki. VÍFA heldur bikarmót í Akrabraut miðvikudaginn 15. júní.…Lesa meira

true

Manuel Rodriguez áfram í Borgarnesi

Manuel Rodriguez hefur ákveðið að framlengja samning sinn sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfubolta og stýra þeim í úrvalsdeildinni næsta haust. Manuel hefur náð góðum árangri með Skallagrím; hann tók við liðinu síðasta haust og kom þeim upp í úrvalsdeild með sannfærandi hætti, liðið tapaði aðeins tveimur leikjum á tímabilinu. Þetta eru því gleðifréttir fyrir…Lesa meira

true

Skagamenn féllu úr leik í bikarnum

Skagamenn mættu liði Breiðabliks í sextán liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gær. Breiðablik sigraði í leiknum með tveimur mörkum gegn einu. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma og því réðust úrslitin í framlengingu. Árið 2013 komust Skagamenn síðast í sextán liða úrslit bikarkeppninnarog var því sagan að endurtaka sig. Léku þeir einmitt þá við Breiðablik og tapaðist leikurinn…Lesa meira

true

Víkingur á toppi A-riðils fyrstu deildar

Víkingur Ólafsvík fékk Knattspyrnufélagið Hlíðarenda í heimsókn í gær í A-riðli fyrstu deildar kvenna. Fyrir leikinn hafði Víkingur unnið alla sína leiki. Það varð engin breyting á því leikurinn í gær endaði 1 – 0 fyrir Víkingi. Sigurmark Snæfellinga kom á elleftu mínútu og það skoraði Samira Suleman sem hefur nú skorað sex mörk í…Lesa meira