Íþróttir

true

Einar Örn setti Íslandsmet í bekkpressu

Um síðustu helgi var haldið Íslandsmót í klassískum kraftlyftingum og einnig Íslandsmót í klassískri bekkpressu. Bæði mótin voru haldin af Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur. Helgin hófst með keppni í klassískri bekkpressu á laugardaginn. Kraftlyftingafélag Akraness átti þar tvo fulltrúa; Einar Örn Guðnason og Svavar Örn Sigurðsson. Svavar gerði sér lítið fyrir og sigraði í 74 kg flokki…Lesa meira

true

Kanalausir Snæfellingar töpuðu í Hveragerði

Úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik hófst um helgina. Snæfellingar mættu Hamri suður í Hveragerði og máttu játa sig sigraða, 106-93, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureigninni. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks en eftir það sigu heimamenn fram úr og leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhluta, 35-24. Áfram voru heimamenn sterkari…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir Íslandsmeisturunum

Skallagrímskonur þurftu að játa sig sigraðar, 82-86, eftir æspispennandi leik gegn Íslandsmeisturum Keflavíkur í Domino‘s deildinni í gær. Leikið var í Borgarnesi. Keflavík skoraði fyrstu stigin en eftir það náðu Skallagrímskonur yfirhöndinni. Þær létu finna vel fyrir sér og komust í 15-7 þegar lítið var eftir af fyrsta leikhluta. Þá náði Keflavík góðri rispu og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í baráttuleik

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Stjörnunni, 69-65, eftir spennandi baráttuleik í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Stjarnan krækti með sigrinum í mikilvæg stig í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og Stjarnan leiddi 10-9 um miðjan fyrsta leihluta. Snæfell skoraði aðeins fjögur stig næstu fimm mínúturnar og á…Lesa meira

true

Skallagrímur lyfti sér upp í fjórða sæti

Skallagrímur lyfti sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna með sannfærandi sigri á Breiðabliki í gærkvöldi. Skallagrímsliðið hafði yfirhöndina allan leikinn og vann að lokum stórt, 65-85. Skallagrímskonur byrjuðu betur og tóku síðan öll völd á vellinum um miðjan upphafsfjórðunginn. Breiðablik átti erfitt uppdráttar og Skallagrímur leiddi örugglega eftir fyrsta leikhluta, 25-10. Heimaliðið náði…Lesa meira

true

Snæfell sigraði botnliðið

Snæfell sigraði botnlið Njarðvíkur, 81-74, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur náðu undirtökunum snemma leiks, leiddu 15-5 um miðjan upphafsfjórðunginn og 29-20 að honum loknum. Þær voru áfram sterkari framan af öðrum leikhluta og náðu 13 stiga forskoti áður en hann var hálfnaður, 38-25. Þá tóku Njarðvíkurkonur á sig…Lesa meira

true

Nemendur Auðarskóla gerðu góða hluti í glímu um helgina

Grunnskólamót í glímu var haldið í Reykjanesbæ um liðna helgi. Á vefsíðu Glímusambands Íslands segir að mótið hafi gengið vel fyrir sig og fóru keppendur ánægðir heim. Svana Hrönn Jóhannsdóttir, nýkjörin formaður Glímusambands Íslands, var mótsstjóri. Nemendur úr Auðarskóla í Búðardal gerðu mjög góða hluti á mótinu og fóru heim með fimm verðlaun. Þar af…Lesa meira

true

Skagamenn eignuðust níu Íslandsmeistara í badminton

Íslandsmót unglinga í badminton fór fram á Akranesi um liðna helgi. Þátttakendur voru 150 talsins, þar af 18 frá Íþróttabandalagi Akraness. Vel gekk hjá Skagamönnum en ÍA eignaðist níu Íslandsmeistara og sjö silfurverðlaun rötuðu í hús. Það ber hæst í árangri heimafólks að bræðurnir Brynjar Már og Máni Berg Ellertssynir urðu báðir þrefaldir Íslandsmeistarar, í…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum en úrslitakeppnin framundan

Snæfell mátti sætta sig við tap gegn Breiðabliki, 86-112, í lokaleik 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Stykkishólmi og höfðu heimamenn ekki að neinu að keppa, þar sem þeir höfðu þegar tryggt sér fimmta sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni. Gestirnir úr Kópavogi náðu hins vegar með sigri að…Lesa meira

true

Misstu af sigrinum í lokafjórðungnum

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn toppliði Hauka, 85-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar höfðu yfirhöndina í upphafi leiks og framan af fyrsta leikhluta. Snæfell náði með góðum spretti að minnka muninn í 14-12 eftir sjö mínútna leik. Haukar áttu hins vegar…Lesa meira