Íþróttir

true

Bergþór semur við Skallagrím

Skallagrímur hefur endurnýjað samning sinn við Bergþór Ægir Ríkharðsson til tveggja ára. Bergþór kom til Skallagríms fyrir ári síðan og lék með liðinu í Domino‘s deildinni þar sem hann var með 2,1 stig að meðaltali í leik. Bergþór er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Áður en hann kom í herbúðir Skallagrímsmanna fyrir ári…Lesa meira

true

Sterkari frá fyrstu mínútu

ÍA vann öruggan sigur á ÍR með þremur mörkum gegn engu þegar liðin mættust í fjórðu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Skagkonur voru mun sterkari meira og minna frá fyrstu mínútu leiksins en ÍR-liðið átti erfitt uppdráttar. Skagakonur skapaði sér nokkur ákjósanleg marktækifæri og komust yfir á 22.…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót eldsmiða var haldið á Akranesi

Íslandsmótið í eldsmíði var haldið á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðastliðinn sunnudag. Hefð er fyrir því að íslenskir eldmiðir komi saman langa helgi en þeir hófu dagskrána á örnámskeiði í eldsmíði á fimmtudaginn. Til úrslita á mótinu kepptu síðan sjö. Var verkefnið tvíþætt. Annars vegar áttu þátttakendur að smíða mataráhöld og hins vegr nytjahlut…Lesa meira

true

Kristján og Almar sömdu við Skallagrím

Þeir Kristján Örn Ómarsson og Almar Örn Björnsson hafa endurnýjað samninga sína við Körfuknattleiksdeild Skallagríms. Munu þeir leika með meistaraflokki í 1. deildinni næsta vetur. „Báðir eru þeir uppaldir Skallagrímsmenn og hafa tekið góðum framförum á liðnum árum,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Kristján og Almar leika báðir stöðu framherja og sömdu báðir til…Lesa meira

true

Hafnfirðingar efstir á Akranesleikunum

Akranesleikarnir í sundi fóru fram í Jaðarsbakkalaug á Akranesi um liðna helgi, dagana 31. maí – 2. júní. Tólf sundfélög tóku þátt í mótinu að þessu sinni og sendu alls 286 keppendur til keppni. Akranesleikarnir eru stigakeppni milli félaga þar sem fimm fyrstu keppendur í hverri grein safna stigum fyrir sitt félag. Úrslit urðu þannig…Lesa meira

true

Fundu aldrei taktinn

Ólafsvíkingar máttu sætta sig við 2-0 tap á útivelli gegn Leikni R., en liðin mættust í fimmtu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik en leikmenn Víkings Ó. náðu sér ekki á strik. Leiknir fékk fleiri færi framan af leiknum og vildu meina að löglegt mark hefði verið…Lesa meira

true

Endurkomusigur í bikarnum

Skagakonur eru komnar áfram í Mjólkurbikar kvenna eftir frábæran endurkomusigur á Þrótti R. á Akranesvelli á föstudagskvöld, 3-2. Gestirnir úr Reykjavík byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 2. mínútu. Lauren Wade fékk sendingu inn fyrir vörn Skagakvenna og kláraði vel framhjá Tori Ornela í markinu. Þróttur réði gangi mála á vellinum…Lesa meira

true

Óvænt tap í Eyjum

ÍA tapaði óvænt gegn botnliði ÍBV í Pepsi Max deild karla í gær, 3-2. Leikið var á Hásteinsvelli í Vestmanneyjum. Skagamenn sóttu stíft í upphafi leiks og komust yfir strax á 6. mínútu. Gilson Correia var að dóla með boltann sem aftasti maður. Tryggvi Hrafn Haraldsson nýtti sér það, hirti boltann af honum og skoraði.…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagríms

Skallagrímur vann góðan 2-0 sigur á KH þegar liðin mættust í fimmtu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu í gær, uppstigningardag. Leikið var í Borgarnesi. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn vel og komust yfir strax á 3. mínútu. Eftir markspyrnu frá marki heimanna var boltinn skallaður fyrir fætur Declan Redmond. Hann sendi hann í fyrstu snertingu á…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum

Skagamenn eru úr leik í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu eftir 2-1 tap gegn FH í Hafnarfirði í gærkvöldi. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og náðu að skapa sér nokkur ágætis færi fyrstu mínúturnar, en öll fóru þau forgörðum. Skagamenn komust betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn en náðu ekki að…Lesa meira