Íþróttir

true

Mjólkurbikarinn hefst í Akraneshöllinni í kvöld

Mjólkurbikar karla í knattspyrnu hefst í kvöld, miðvikudaginn 10. apríl. Fyrsti leikur bikarkeppninnar þetta árið er viðureign Kára og Hamars í Akraneshöllinni. Snæfell mætir KB á útivelli föstudaginn 12. apríl og Skallagrímur tekur á móti KV sunnudaginn 14. apríl. Víkingur Ó. hefur leik fimmtudaginn 18. apríl og tekur þá annað hvort á móti Úlfunum eða…Lesa meira

true

Í úrslit eftir ótrúlegan endasprett

Skagamenn tryggðu sér sæti í úrslitaleik 2. deildar karla í körfuknattleik með ótrúlegum útisigri á KV á föstudagskvöld. Skemmst er frá því að segja að heimamenn í KV höfðu undirtökin í leiknum nær allan tímann, en Skagamenn voru þó aldrei langt undan. Mikil spenna færðist í leikinn í lokafjórðungnum, en þegar rúm mínúta lifði leiks…Lesa meira

true

Tap í jöfnum úrslitaleik

Skagamenn töpuðu 2-1 fyrir KR þegar liðin mættust í úrslitaleik Lengjubikars karla í gærkvöldi. Leikið var í Laugardalnum í Reykjavík. Um hörkuleik var að ræða. Mikið jafnræði var með liðunum frá upphafi til enda og lítið sem skildi liðin að. Bæði lið fengu sín marktækifæri framan af fyrri hálfleiknum. Á 23. mínútu skoraði Pablo Punyed…Lesa meira

true

Ringó er vaxandi íþróttagrein hjá eldra fólki

Sú hefð hefur skapast að þau lið sem æfa ringó á suðvesturhorni landsins hafa komið saman þrisvar yfir keppnisárið; á Hvolsvelli/HSK, í Mosfellsbæ/FaMos, Kópavogi/Glóðin og í Borgarnesi/UMSB. Hefur þessi hittingur eflt starfið og komið á góðum kynnum milli áðurnefndra liða. Nýverið mættust liðin í íþróttahúsinu í Borgarnesi og reyndu með sér. Til keppninnar mættu sjö…Lesa meira

true

Skagakonur lágu gegn Fylki

ÍA tapaði gegn Fylki, 4-0, í lokaleik B deildar Lengjubikars kvenna í knattspyrnu á föstudaginn. Heimaliðið mætti mjög ákveðið til leiks og var mun sterkara í fyrri hálfleik. Marija Radojicic koma Fylki yfir strax á 11. mínútu leiksins. Skömmu síðar komu tvö mörk með örstuttu millibili frá Mariju og Þórdísi Elvu Ágústsdóttur og Fylkiskonur komnar…Lesa meira

true

Silfur á Norðurlandmótinu í hnefaleikum

Borgnesingurinn Kristín Sif Björgvinsdóttir vann til silfurverðlauna á Norðurlandamóti í hnefaleikum sem fram fór í Finnlandi um helgina. Kristín Sif sigraði Lille Ashlsted frá Finnlandi og komst þá áfram í úrslit þar sem hún mætti Love Holgersson frá Danmörku. Love hafði betur í bardaganum og tók Kristín Sif því silfrið. Þær Kristín Sif og Love…Lesa meira

true

Stórsigur Kára á Skallagrími

Kári og Skallagrímur áttust við í Vesturlandsslag í Lengjubikar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Akraneshöllinni. Kári leikur sem kunnugt er í 2. deild en Skallagrímur tryggði sér sæti í 3. deildinni eftir síðasta keppnistímabil. Borgnesingar fengu óskabyrjun þegar Pali Ervis kom Skallagrími yfir strax á 6. mínútu leiksins. Mikael Hrafn Helgason varð…Lesa meira

true

Fengu skell í lokaleiknum

Skallagrímskonur fengu skell á útivelli gegn Haukum í lokaumferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 104-59. Skallagrímskonur áttu afleitan fyrsta leikhluta og skoruðu aðeins níu stig allan upphafsfjórðunginn. Á meðan settu Haukar 34 stig á töfluna og ljóst í hvað stefndi. Heimaliðið réði ferðinni allt til hálfleiks og leiddi með 29 stigum í hléinu,…Lesa meira

true

Snæfell missti af úrslitakeppninni

Snæfellskonur komast ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn eftir tap gegn toppliði Vals á útivelli í gærkvöldi, 82-56. Fyrir leikinn var Snæfell í fimmta sæti með jafn mörg stig og KR í sætinu fyrir ofan. Snæfellskonur þurftu á sigri að halda í leiknum og jafnframt að treysta á hagstæð úrslit í leik KR og Keflavíkur sem…Lesa meira

true

Grundfirsku blakstelpurnar upp um deild

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í blaki sem lauk á dögunum. Þetta varð ljóst eftir síðustu keppnishelgina en Grundarfjörður endaði með 27 stig eftir veturinn en Ungmennafélagið Hjalti varð hlutskarpara með 32 stig. Það er því ljóst að Ungmennafélag Grundarfjarðar mun leika í 1. deild að nýju eftir smá hlé.…Lesa meira