
Knattspyrnufélag ÍA samdi í gær við Jón Gísla Eyland Gíslason. Gengur hann til liðs við ÍA frá Tindastóli. Jón Gísli er fæddur árið 2002 og hefur spilað 37 leiki með meistaraflokki Tindastóls og skorað í þeim eitt mark. Þá á hann að baki 13 leiki með U17 ára landsliði Íslands og þrjá leiki með U16.…Lesa meira








