Íþróttir

true

Víkingar fengu skell gegn Fjölni

Draumabyrjun Víkings Ólafsvíkur í Pepsi deild karla í knattspyrnu tók enda í kvöld. Liðið mætti Fjölni í Grafarvoginum og fékk skell, tapaði með 5 mörkum gegn einu. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik, eða allt þar til Martin Lund Petersen kom Fjölni yfir á 28. mínútu eftir langa sendingu frá hægri. Aðeins tveimur…Lesa meira

true

Hreyfivika á ýmsum stöðum á Vesturlandi

Hin árlega Hreyfivika, MOVE WEEK hefst á morgun, mánudaginn 23. maí. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu en árið 2015 voru yfir milljón þátttakendur. Markmið verkefnisins er að fjölga íbúum í Evrópu sem hreyfa sig reglulega. Nokkur sveitarfélög á Vesturlandi ætla að taka þátt í Hreyfivikunni með því að bjóða upp á fjölbreytta…Lesa meira

true

Jafnt hjá ÍA og botnliði Fylkis

Fimmta umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu hófst í dag með leik ÍA og Fylkis á Akranesvelli. ÍA hafði einn sigur fyrir leik kvöldsins en gestirnir voru stigalausir á botni deildarinnar. Fylkismenn voru engu að síður sterkari í leiknum heilt yfir en það er ekki spurt að því að leikslokum. Þá höfðu liðin skorað sitt markið…Lesa meira

true

ÍA tapaði stórt fyrir norðan

Önnur umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. ÍA mætti Þór/KA á Þórsvelli. Fyrirfram var búist við því að á brattann yrði að sækja fyrir Skagakonur, Akureyringum víðast hvar spáð toppbaráttu í sumar en Skagaliðinu botnbaráttu. Fór svo að lokum að Þór/KA vann stórsigur, 4-0. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af…Lesa meira

true

Úr markmannshönskum í sjóhanska

Það var ekki á Einari Hjörleifssyni, markmanni Víkings Ólafsvíkur, að sjá að hann hafi munað um að verja vítaspyrnu frá Garðari Gunnlaugssyni í 3-0 sigri Víkings gegn ÍA í Vesturlandsslag Pepsi deildar karla í gærkvöldi. Markmaðurinn knái er áhafnarmaður á aflaskipinu Guðmundi Jenssyni SH. Á hádegi í dag, þriðjudag, var skipið komið til Ólafsvíkurhafnar með 20…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur í fyrsta leik

Keppni í 3. deild karla í knattspyrnu hófst nú um hvítasunnuhelgina. Knattspyrnufélag Kára frá Akranesi leikur þar undir stjórn Sigurðar Jónssonar þjálfara, líkt og í fyrra. Káramenn léku sinn fyrsta leik á öðrum í hvítasunnu síðastliðinn mánudag þegar KFS úr Vestmannaeyjum kom í heimsókn. Leikið var í Akraneshöllinni. Úrslit leiksins urðu þau að Kári vann…Lesa meira

true

Farid Zato genginn til liðs við Víking

Víkingur Ólafsvík hefur náð samkomulagi við Farid Zato sem er stuðningsmönnum liðsins kunnugur. Farid kemur í Ólafsvík frá Sigma Olomouc í tékknesku úrvalsdeildinni þar sem hann spilaði síðast. Farid spilaði með Víkingi árið 2013 þegar liðið var síðast í Pepsi deildinni en kvaddi það og fór að spila með KR sumarið 2014.    Lesa meira

true

Víkingur sigraði Vesturlandsslaginn

Víkingur Ólafsvík og ÍA mættust í Vesturlandsslag í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar í Ólafsvík voru prýðilegar. Völlurinn góður og örlítil gola. Heimamenn voru betri allan leikinn og sigruðu að lokum með þremur mörkum gegn engu. Víkingar komust yfir strax á 5. mínútu leiksins og þar var á ferðinni William…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í boltanum í kvöld

Skagamenn leggja land undir fót og heimsækja nágranna sína í Víkingi í Ólafsvík í kvöld.  Búast má við hörkuleik í þessu Vesturlandsslag en Víkingur hefur farið vel af stað í deildinni og eru með sjö stig eftir þrjá leiki á meðan Skagamenn eru með þrjú stig.  Nokkuð er um meiðsli í leikmannahópi beggja liða. Leikurinn…Lesa meira

true

Iain Williamson til liðs við ÍA

ÍA hefur fengið Skotann Iain James Williamson að láni frá Víkingi Reykjavík. Iain er leikreyndur 28 ára miðjumaður sem hefur spilað með Grindavík, Val og Víking hér á landi og skosku liðunum Dunfermline og Raith Rovers. Arnar Már Guðjónsson miðjumaður ÍA meiddist í leiknum gegn Fjölni en auk hans hefur Hallur Flosason átt við meiðsli…Lesa meira