Íþróttir

true

Vesturlandsliðin leika á morgun í bikarnum

Á morgun, fimmtudaginn 11. janúar, verður leikið í undanúrslitum Maltbikars kvenna í körfuknattleik. Leikið verður í Laugardalshöll í Reykjavík og sá háttur hafður á að báðir leikirnir fara fram sama daginn. Vesturlandsliðin Skallagrímur og Snæfell verða í eldlínunni á morgun, en þau mættust einmitt í undanúrslitum á síðasta ári. Í fyrri undanúrslitaleiknum á morgun mætast…Lesa meira

true

Jón Þór fer að þjálfa hjá Stjörnunni

Frá því er greint á Twitter-síðu Knattspyrnufélagsins Stjörnunnar í Garðabæ að félagið hafi ráðið til sín tvo aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Þetta eru þeir Veigar Páll Gunnarsson og Jón Þór Hauksson og verða þeir til fulltingis Rúnari Páli Sigmundssyni þjálfara. Jón Þór Hauksson er Skagamaður í húð og hár og hefur einkum sinnt starfi þjálfara…Lesa meira

true

Þrír ungir leikmenn semja við ÍA

Þrír ungir leikmenn, þeir Alexander Már Þorláksson, Birgir Steinn Ellingsen og Marinó Hilmar Ásgeirsson, hafa skrifað undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA og munu leika með liðinu út sumarið 2019. Allir eru þeir uppaldir hjá félaginu. Alexander Már er fæddur árið 1995 og hefur undanfarin ár leikið með Fram, KF og Hetti en lék…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í kaflaskiptum Vesturlandsslag

ÍA tók á móti Snæfelli í Vesturlandsslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gær, sunnudaginn 7. janúar. Leikurinn var kaflaskiptur mjög, Skagamenn heilt yfir sterkari í fyrri hálfleik og leiddu í hléinu. Snæfell var hins vegar sterkara í síðari hálfleik og vann að lokum með 103 stigum gegn 85. Snæfell hafði heldur yfirhöndina á upphafsmínútum…Lesa meira

true

Kláruðu leikinn í lokafjórðungnum

Skallagrímur vann góðan útisigur á Njarðvík í fyrsta leik liðsins eftir jólafrí síðastliðinn laugardag. Eftir jafnan leik framan af kláraði Skallagrímur leikinn í fjórða leikhluta og sigraði, 61-76. Jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en Skallagrímur jafnaði í 6-6 og eftir það fylgdust liðin að. Undir lok leikhlutans náðu Skallagrímskonur síðan…Lesa meira

true

Snæfell stigalaust í fjórða leikhluta

Keppni í Domino‘s deild kvenna hófst að nýju eftir jólafrí síðastliðinn laugardag. Í Stykkishólmi tóku Snæfellskonur á móti Keflavík. Leikurinn var mjög einkennilegur, Snæfell leiddi með tíu stigum í hléinu en afleitur síðari hálfleikur varð til þess að liðið varð á endanum að sætta sig við stórt, 53-80. Báðum liðum gekk hálf illa að fóta…Lesa meira

true

Björn Bergmann til FC Rostov

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur verið seldur frá Molde í Noregi til rússneska úrvalsdeildarliðsins FC Rostov. Greint var frá félagaskiptunum á heimasíðu Molde í dag. Björn er 26 ára gamall og hefur leikið með Molde frá því sumarið 2016 og var markahæsti leikmaður liðsins á liðnu keppnistímabili með 16 mörk. Þá var hann enn fremur…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði í fyrsta leik ársins

Fyrsti leikur nýja ársins í 1. deild karla í körfuknattleik fór fram í Borgarnesi í gærkvöldi. Þar tóku heimamenn í Skallagrími á móti Gnúpverjum og sigruðu, 101-80. Skallagrímsmenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiksins og leiddu með þremur stigum um miðjan fyrsta leikhluta, 16-13. Þá náðu Gnúpverjar smá rispu og komust tveimur stigum yfir, 18-20…Lesa meira

true

Valdís Þóra tilnefnd sem Íþróttamaður ársins

Samtök íþróttafréttamanna gangast í 62. sinn fyrir vali á Íþróttamanni ársins. Verður greint frá því hver hreppir nafnbótina við hátíðlega athöfn í Hörpu í kvöld, 28. desember. Kunngjört hefur verið hvaða tíu íþróttamenn hlutu flest atkvæði í kjörinu og skipa fimm karlar og fimm konur tíu efstu sætin. Þar á meðal er Skagakonan Valdís Þóra…Lesa meira

true

Fréttaannáll ársins 2017

Ágæti lesandi, blaðamanni langar að draga upp myndir fyrir þig. Drátthagur er hann ekki en getur þó dregið til stafs, með aðstoð lyklaborðs og því teiknað með orðum: Blaðamaður setur blek í penna og fyllir blaðfákinn af eldsneyti áður en hann ekur áleiðis út á Snæfellsnes og hittir þar fólk sem er að stofna fyrirtæki,…Lesa meira