Íþróttir

true

Eiga sér fyrirmyndir í fjölskyldunni

Körfuboltabræðurnir Þorgeir og Sigurður Aron Þorsteinssynir eru búsettir í Borgarnesi. Bræðurnir eru efnilegir spilarar og hafa báðir verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár. Þorgeir er fæddur árið 1999 og er því 17 ára gamall en Sigurður er tveimur árum yngri. Báðir leika þeir stöðu miðherja og hafa hæðina með sér. Þorgeir er 205 sentímetrar…Lesa meira

true

Akranesleikarnir fóru fram um helgina

Akranesleikarnir í sundi fóru fram um síðastliðna helgi í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. 265 sundmenn frá tíu félögum tóku þátt á mótinu að þessu sinni en það er aðeins færra en síðustu ár. Mótið er stigakeppni milli liða þar sem fimm fyrstu keppendurnir í hverri grein fá stig og í boðsundi tvöfaldast svo stigafjöldinn. Sundfélag Akraness…Lesa meira

true

Víkingar sóttu stig í Kaplakrika

Víkingar léku gegn Íslandsmeisturum FH í sjöttu umferð Pepsi deildar karla í gær. Víkingar áttu í smá erfiðleikum varnarlega í fyrri hálfleik sem varð til þess að FH fékk nokkur mjög góð færi. Á tíundu mínútu fékk FH gott færi þegar boltinn datt fyrir fætur Davíðs Þórs Viðarssonar en skoti hans var naumlega bjargað af…Lesa meira

true

Rallýmenn tæta af stað á föstudaginn

Rallýáhugafólk landsins bíður næstu helgar með óþreyju en fyrsta umferð í Íslandsmótinu í rallý 2016 verður ekin á Suðurnesjum dagana 3. og 4. júní. Að venju er það Akstursíþróttafélag Suðurnesja sem sér um þessa fyrstu keppni; Orkurallýið. Alls eru fjórtán áhafnir skráðar til leiks og má þar sjá bæði reynslubolta í bland við nýliða ásamt…Lesa meira

true

Dramatík í lokin

Í gær fór fram leikur ÍA og Víkings Reykjavíkur í sjöttu umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið til að spyrna sér frá botni deildarinnar. Gunnlaugur Jónsson breytti leikkerfi Skagamanna frá síðasta deildarleik úr 4-4-2 í 3-5-2. Leikurinn fór býsna fjörlega af stað og voru það Skagamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins…Lesa meira

true

Borgfirðingar í öðru sæti á Ringómóti

Ringómót var haldið 22. maí síðastliðinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli. Sex lið mættu til keppni en spiluð var ein umferð, alls 15 leikir þar sem allir kepptu við alla. Keppendur voru 26 en þau lið sem tóku þátt í mótinu voru frá Glóð í Kópavogi (tvö lið), einnig tvö lið frá UMSB í Borgarfirði og…Lesa meira

true

Skagamenn áfram í bikarnum

ÍA tók á móti 2. deildar liði KV í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Leiknum lauk með 1-0 sigri ÍA. Eina mark leiksins kom strax á 5. mínútu og það gerði Þórður Þorsteinn Þórðarson. Fyrirgjöf frá vinstri rataði í gegnum vítateginn og á fjærstöngina þar sem Þórður var mættur og kláraði færið.…Lesa meira

true

Gæðingamót Faxa og Skugga 4. júní

Gæðingamót hestamannafélaganna Faxa og Skugga verður haldið í Borgarnesi laugardaginn 4. júní næstkomandi. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, B flokki gæðinga og A flokki.  Einnig í 150 m. skeiði ef þátttaka næst og verður tímataka handvirk. “Mótið er einvörðungu ætlað félagsmönnum og hestum Faxa og Skugga. Skráning er í gegnum Sportfeng og er Skuggi…Lesa meira

true

Snæfell semur við tvo leikmenn

Tveir leikmenn hafa samið við körfuknattleiksdeild Snæfells og munu leika með karlaliði félagsins í Domino‘s deild karla á komandi vetri. Leikmennirnir eru annars vegar Rúnar Þór Ragnarsson frá Kverná. Hann er fæddur árið 1993 og leikur stöðu miðherja. Rúnar lék á síðasta vetri með liði Grundfirðinga í 3. deildinni. Hins vegar hefur verið endurnýjaður samningur…Lesa meira

true

Skagakonur mæta Haukum í bikarnum

Dregið var í 16 liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu í gær. Leikdagar verða helgina 11.-12. júní. Þegar dregið er í 16 liða úrslit bikarsins er úrvalsdeildarliðum bætt í pottinn. Þá kom í ljós að ÍA mætir Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði og fer leikurinn fram sunnudaginn 12. júní. Aðrar viðureignir verða eftirfarandi: Bikarmeistarar Stjörnunnar heimsækja…Lesa meira