Íþróttir

true

Biðla til almennings og fyrirtækja um stuðning við afrekssjóð sundfólks

Sundfélag Akraness biðlar til fyrirtækja og velunnara félagsins um stuðning til kostnaðarsams uppbyggingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið bæði í sundskóla félagsins og einnig í starfsemi yngri hópanna. Í elstu aldurshópunum er sundfólk sem keppir fyrir hönd félagsins en þar á meðal er afreksfólk sem keppir fyrir Íslands hönd á mörgum mótum, bæði hér á landi…Lesa meira

true

Eyjamenn sigruðu Víking í Ólafsvík

Fjórða umferð Pepsideildar karla hófst í gær í Ólafsvík með leik Víkings og Eyjamanna. Fyrir leikinn höfðu bæði lið aðeins unnið einn leik það sem af er móti. Leikurinn var bragðdaufur og fátt var um fína drætti en baráttan þó mikil. Leiknum lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Eyjamanna sem með sigrinum lyftu sér upp…Lesa meira

true

ÍA mætir Gróttu í bikarnum

Dregið var í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu nú í hádeginu. ÍA var eitt vestlenskra liða í pottinum, en Skagamenn báru sigurorð af Fram í ótrúlegum leik á Akranesi á miðvikudagskvöld, 4-3. Skagamenn drógust á móti 1. deildar liði Gróttu og mætast liðin á Akranesvelli þriðjudaginn 30. maí næstkomandi. Bikarmeistarar Vals taka á…Lesa meira

true

Víkingar luku leik í bikarnum í gær

Í vikunni fór fram 32-liða í Borgunarbikar karla í knattspyrnu. Aðeins ein viðureign í 32-liða úrslitum var milli liða í efstu deild en Víkingur Ólafsvík fékk heimaleik gegn Valsmönnum og var sá leikur leikinn í gær. Það var ljóst fyrir leikinn að Víkingum beið erfitt verkefni í ljósi þess að Valsmenn hafa verið það lið…Lesa meira

true

Ótrúleg endurkoma Skagamanna

ÍA sigraði Fram í ótrúlegum leik í Borgunarbikar karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær. Gestirnir leiddu 3-1 þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Upphófust þá hreint út sagt ótrúlegar lokamínútur þar sem Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fimm mínútum og tryggðu sér 4-3 sigur. Framarar komust yfir strax…Lesa meira

true

Þrjár konur af Vesturlandi í landsliðshópnum

Búið er að velja þá tólf leikmenn sem munu skipa landslið Íslands, hjá konum og körlum, á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marínó dagana 30. maí til 3. júní. Þetta eru 17. leikar smáríkja Evrópu sem haldnir eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru haldnir hér á landi fyrir tveimur árum þar sem bæði…Lesa meira

true

ÍA semur við fjóra efnilega leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gengið frá samningum við fjóra unga og efnilega leikmenn. Þetta eru þær Ásta María Búadóttir, Erla Karitas Jóhannesdóttir, Katrín María Óskarsdóttir og Sigrún Eva Sigurðardóttir. Allar voru þær að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið. Þær leika allar með 3. flokki en stigu sín fyrstu skref með meistaraflokki á nýliðnu undirbúningstímabili.…Lesa meira

true

Kári féll úr bikarnum

Káramenn hafa lokið keppni í Borgunarbikar karla í knattspyrnu að þessu sinni. Þeir mættu 1. deildar liði Selfoss í 32 liða úrslitum í gær og máttu sætta sig við 3-2 tap. Alfi Conteh Lacalle kom Selfyssingum yfir á 13. mínútu og tveimur mínútum síðar bæti James Mack við öðru marki heimamanna. Andri Júlíusson minnkaði muninn…Lesa meira

true

Skallagrímspiltar Faxaflóameistarar

Skallagrímspiltar í 5. flokki tryggðu sér á laugardag sigur í C riðli B liða í Faxaflóamótinu. Þeir sigruðu Ægi/Hamar 6-1 í lokaleik mótsins, kræktu í sitt 19 stig í mótinu og náðu þar með eins stigs forskoti á Breiðablik 3 sem hafnaði í öðru sæti.Lesa meira

true

Víkingar sigruðu Grindavík örugglega

Víkingur Ó. krækti í fyrstu stig sumarsins í Pepsi deild karla þegar liðið sigraði nýliða Grindavíkur 1-3 í þriðju umferð mótsins í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Grindavík. Jafnt var á með liðunum og mikil barátta einkenndi fyrri hálfleikinn. Vindurinn var leikmönnum nokkuð erfiður í fyrri hálfleik, en töluvert rok var í Grindavík í gær.…Lesa meira