Íþróttir

true

Skagamenn í fimmta sæti í Bikarkeppni SÍ

Um liðna helgi var Bikarmót Sundsambands Íslands haldin í Reykjanesbæ. Margir af sterkustu sundmönnum Íslands syntu á mótinu. Sundfélag Akraness sendi bæði kvenna- og karlalið og var gengi þeirra framar vonum en bæði liðin urðu í fimmta sæti. Hvað stigafjölda varðar er árangurinn á mótinu  í ár sá besti síðastliðin átta ár. Margir sundmennirnir bættu…Lesa meira

true

Grátlegt tap í lokaleiknum

ÍA tók á móti KR í lokaleik Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu síðasta föstudag. Skagakonur áttu ekki möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en hefðu með sigri getað tekið KR með sér niður í 1. deild. Sú varð hins vegar ekki raunin því eftir æsispennandi leik tókst gestunum að tryggja sér nauman sigur…Lesa meira

true

Snæfell sigraði keppnina um Meistara meistaranna

Íslands- og bikarmeistarar Snæfells í körfuknattleik kvenna sigruðu Grindavík þegar leikið var um Meistara meistaranna í gær. Í þeim leik mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs, en þar sem Stykkishólmsliðið hampaði báðum titlunum var liðið úr úrslitum bikarkeppninnar fengið til að etja kappi við Snæfell. Nokkur haustbragur var á leik beggja liða framan af og…Lesa meira

true

Víkingur og ÍA áfram í deild þeirra bestu – Garðar fékk gullskóinn

Lokaumferð Pepsí deildar karla í knattspyrnu var spiluð í gær. Fyrir þessa umferð gat það orðið hlutskipti Víkings Ólafsvík eða Fylkis að falla í Inkassó deildina, þ.e. 1. deild. Þrátt fyrir 4:1 tap Víkings gegn Stjörnunni heldur liðið áfram í Pepsí deild þar sem Fylkir tapaði á sama tíma á útivelli 3-0 fyrir KR. Það…Lesa meira

true

Meistarar meistaranna spila á morgun

Á morgun, sunnudaginn 2. október, er komið að hinum árlegu leikjum Íslandsmeistara og bikarmeistara karla og kvenna í körfu, frá síðasta keppnistímabili. Leikið verður að þessu sinni á heimavelli Íslandsmeistara karla og fara leikirnir því fram í DHL-höll KR-inga. Í báðum tilfellum eru Íslandsmeistarar síðasta árs, KR hjá körlum og Snæfell hjá konum, tvöfaldir meistarar,…Lesa meira

true

Leikmenn Víkings og stuðningsmenn leggja allt undir

Gríðarleg stemning er meðal stuðningsmanna knattspyrnuliðs Víkings í Ólafsvík fyrir síðustu umferðina. Lokaleikur mótsins verður spilaður á morgun, laugardag þegar Víkingur mætir Stjörnunni á Samsung vellinum í Garðabæ klukkan 14. Víkingsliðið er í fallhættu og í harðri baráttu við Fylki sem mætir KR á sama tíma í Frostaskjólinu. Stuðningsmenn Víkings ætla að fjölmenna á leikinn…Lesa meira

true

Pálína í Snæfell og Berglind framlengir

Snæfell hefur samið við landsliðskonuna Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Pálína er 29 ára gömul og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Haukum á síðasta tímabili, skoraði 10,9 stig að meðaltali í leik og hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár. Sem leikmaður Hauka…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn valinn í U21 árs landsliðið

Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður ÍA, hefur verið valinn í lokahóp U21 árs landsliðs karla sem tekur á móti Skotum miðvikudaginn 5. október og Úkraínumönnum þriðjudaginn 11. október næstkomandi. Frá þessu er greint á heimasíðu knattspyrnufélagsins. Eru það tveir síðustu leikir liðsins í undankeppni fyrir Evrópukeppnina 2017 sem fram fer í Póllandi. Fyrir leikina er Ísland í…Lesa meira

true

Nýr keppnishringur tekinn í notkun á móti hnefaleikafélagsins

Laugardaginn 8. október nk. mun Hnefaleikafélag Akraness, sem er aðili að Íþróttabandalagi Akraness, standa fyrir hnefaleikamóti í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mótið hefst klukkan 17:00. Á mótinu verður vígður nýr keppnishringur Hnefaleikafélagsins á Akranesi en hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Hringurinn er sérstakur að því leyti að hann er ekki upphækkaður eins…Lesa meira

true

Vatnsmótið stóð undir nafni

Vatnsmótið í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi laugardaginn 24. september. Mótið er innanfélagsmót kylfinga í Golfklúbbnum Leyni og eitt elsta innanfélagsmót klúbbsins. Dregur það nafn sitt af miklu vatnsveðri sem var þegar mótið var haldið í fyrsta sinni árið 1970. Stóð mótið sannarlega undir nafni að þessu sinni. Þegar kylfingar höfðu leikið fyrstu…Lesa meira