Íþróttir

true

Vesturlandsliðin eiga heimaleiki klukkan 17 í dag

Í dag átti að spila heila umferð í Pepsí deild karla í knattspyrnu. Leik ÍBV og Stjörnunnar var þó frestað vegna hvassviðris í Eyjum og erfiðs sjólags frá Þorlákshöfn. Klukkan 17:00 tekur Víkingur Ólafsvík á móti Víkingum Reykjavík á Ólafsvíkurvelli. Á sömu mínútu hefst einnig heimaleikur ÍA og KR á Akranesi. Heiðursgestir á þeim leik…Lesa meira

true

Bjarki byrjar háskólagolfið með sigri

Bjarki Pétursson golfari úr Borgarnesi bar sigur úr býtum á Gopher Invitational mótinu í golfi sem haldið er í Minnesota í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta háskólamótið á tímabilinu en Bjarki leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio. Hann lék hringina þrjá af öryggi, á 70, 70 og 69 höggum eða sjö höggum undir pari og…Lesa meira

true

Valdís hefur leik í dag í Svíþjóð

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL á Akranesi hefur leik í dag á Elisefarm Ladies Open, en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem hún hefur leikið á undanfarin ár. Á Kylfingi.is er greint frá því að eftir úrtökumót fyrir LPGA mótaröðina hafi Valdís tekið sér stutta pásu en hún er nú aftur mætt…Lesa meira

true

Leiðrétt tímasetning á leik ÍA og KR

Í fyrri frétt okkar sem birtist á vefnum í gær og í Skessuhorni vikunnar var greint frá því að leikur ÍA og KR í Pepsi deild karla í knattspyrnu færi fram á föstudag. Hið rétta er að ÍA og KR mætast á Akranesvelli á morgun, fimmtudaginn 15. september klukkan 17:00. Leiðréttist það hér með og…Lesa meira

true

Akranesmeistaramót í sundi

Á sunnudaginn fór Akranesmeistaramót Sundfélags Akraness fram á Jaðarsbökkum. Þetta er fyrsta mót tímabilsins og tóku 34 krakkar þátt á mótinu. Keppendur voru 11 ára og eldri. Akranesmeistarar urðu þau Ágúst Júlíusson og Una Lára Lárusdóttir en þau áttu stigahæstu sundin á mótinu. Akranesmeistarar í aldursflokkum urðu Ágúst og Una Lára í flokki 15 ára…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir botnliði Þróttar

  Skagamenn mættu botnliði Þróttar í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Fyrri leik liðanna snemma sumars lauk með 1-0 sigri Þróttar. Skagamenn náðu ekki að hefna fyrir tapið á sunnudag því aftur vann Þróttur, að þessu sinni með þremur mörkum gegn einu. Heimaliðið hefur nú möguleika á að bjarga…Lesa meira

true

Vildu tvær vítaspyrnur en fengu hvoruga

Víkingur Ó. mætti Fylki í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Búast mátti við hörkuleik í Árbæ Reykjavíkur þar sem bæði lið bítast um að halda sæti sínu í deildinni. Víkingar voru í 9. sæti, tveimur stigum fyrir ofan Fylki í næstneðsta sæti. Þegar lokaflautan gall var niðurstaðan sú að heimaliðið hafði sigur með…Lesa meira

true

Slæm byrjun varð Skagakonum að falli

ÍA mætti Val í Pepsi deild kvenna í kanttspyrnu síðastliðinn föstudag. Leikið var á Hlíðarenda. ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar. Með sigri hefði liðið hleypt mikilli spennu í fallbaráttuna. En það varð ekki því Valur hafði sigur með tveimur mörkum gegn engu í miklum baráttuleik. Valskonur byrjuðu af miklum krafti og komust yfir strax…Lesa meira

true

Vefmyndavél komið fyrir á Garðavelli

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að koma upp vefmyndavél við golfvöllinn Garðavöll á Akranesi. Með tilkomu hennar geta kylfingar kynnt sér aðstæður á fyrsta teig vallarins hvenær sem er, hvar sem þeir eru staddir. Aðgangur að vefmyndavélinni er á heimasíðu Golfklúbbsins Leynis, www.leynir.is. Ofarlega til hægri á síðunni er hægt að smella á…Lesa meira

true

Víkingskonur töpuðu öðru sinni fyrir Grindavík

Víkingur Ó. og Grindavík mættust öðru sinni í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu á miðvikudag. Fyrri leiknum, sem leikinn var í Ólafsvík, lauk með fjögurra marka sigri gestanna og var á brattann að sækja fyrir Víkingskonur fyrir aðra viðureign liðanna. Lokatölur á miðvikudag urðu þær sömu og í fyrri leiknum, Grindavík…Lesa meira