Íþróttir

true

Bjarki byrjar háskólagolfið með sigri

Bjarki Pétursson golfari úr Borgarnesi bar sigur úr býtum á Gopher Invitational mótinu í golfi sem haldið er í Minnesota í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta háskólamótið á tímabilinu en Bjarki leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio. Hann lék hringina þrjá af öryggi, á 70, 70 og 69 höggum eða sjö höggum undir pari og…Lesa meira

true

Valdís hefur leik í dag í Svíþjóð

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL á Akranesi hefur leik í dag á Elisefarm Ladies Open, en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem hún hefur leikið á undanfarin ár. Á Kylfingi.is er greint frá því að eftir úrtökumót fyrir LPGA mótaröðina hafi Valdís tekið sér stutta pásu en hún er nú aftur mætt…Lesa meira

true

Leiðrétt tímasetning á leik ÍA og KR

Í fyrri frétt okkar sem birtist á vefnum í gær og í Skessuhorni vikunnar var greint frá því að leikur ÍA og KR í Pepsi deild karla í knattspyrnu færi fram á föstudag. Hið rétta er að ÍA og KR mætast á Akranesvelli á morgun, fimmtudaginn 15. september klukkan 17:00. Leiðréttist það hér með og…Lesa meira

true

Akranesmeistaramót í sundi

Á sunnudaginn fór Akranesmeistaramót Sundfélags Akraness fram á Jaðarsbökkum. Þetta er fyrsta mót tímabilsins og tóku 34 krakkar þátt á mótinu. Keppendur voru 11 ára og eldri. Akranesmeistarar urðu þau Ágúst Júlíusson og Una Lára Lárusdóttir en þau áttu stigahæstu sundin á mótinu. Akranesmeistarar í aldursflokkum urðu Ágúst og Una Lára í flokki 15 ára…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir botnliði Þróttar

  Skagamenn mættu botnliði Þróttar í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Fyrri leik liðanna snemma sumars lauk með 1-0 sigri Þróttar. Skagamenn náðu ekki að hefna fyrir tapið á sunnudag því aftur vann Þróttur, að þessu sinni með þremur mörkum gegn einu. Heimaliðið hefur nú möguleika á að bjarga…Lesa meira

true

Vildu tvær vítaspyrnur en fengu hvoruga

Víkingur Ó. mætti Fylki í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Búast mátti við hörkuleik í Árbæ Reykjavíkur þar sem bæði lið bítast um að halda sæti sínu í deildinni. Víkingar voru í 9. sæti, tveimur stigum fyrir ofan Fylki í næstneðsta sæti. Þegar lokaflautan gall var niðurstaðan sú að heimaliðið hafði sigur með…Lesa meira

true

Slæm byrjun varð Skagakonum að falli

ÍA mætti Val í Pepsi deild kvenna í kanttspyrnu síðastliðinn föstudag. Leikið var á Hlíðarenda. ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar. Með sigri hefði liðið hleypt mikilli spennu í fallbaráttuna. En það varð ekki því Valur hafði sigur með tveimur mörkum gegn engu í miklum baráttuleik. Valskonur byrjuðu af miklum krafti og komust yfir strax…Lesa meira

true

Vefmyndavél komið fyrir á Garðavelli

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að koma upp vefmyndavél við golfvöllinn Garðavöll á Akranesi. Með tilkomu hennar geta kylfingar kynnt sér aðstæður á fyrsta teig vallarins hvenær sem er, hvar sem þeir eru staddir. Aðgangur að vefmyndavélinni er á heimasíðu Golfklúbbsins Leynis, www.leynir.is. Ofarlega til hægri á síðunni er hægt að smella á…Lesa meira

true

Víkingskonur töpuðu öðru sinni fyrir Grindavík

Víkingur Ó. og Grindavík mættust öðru sinni í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu á miðvikudag. Fyrri leiknum, sem leikinn var í Ólafsvík, lauk með fjögurra marka sigri gestanna og var á brattann að sækja fyrir Víkingskonur fyrir aðra viðureign liðanna. Lokatölur á miðvikudag urðu þær sömu og í fyrri leiknum, Grindavík…Lesa meira

true

Skotfimi ekki síður fyrir konur en karla

Í síðustu viku var boðið á konukvöld á æfinga- og keppnissvæði Skotfélags Akraness við rætur Akrafjalls. Þá var konum sérstaklega boðið að mæta og kynna sér skotíþróttina. Guðrún Hjaltalín skipulagði kvöldið og segir hún tilganginn hafa verið að sýna fleirum hversu skemmtileg íþrótt skotfimi er. „Þetta er í fyrsta skipti sem við hóum konum sérstaklega…Lesa meira