Íþróttir

true

Jafntefli í baráttuleik í Ólafsvík

Í kvöld mættust lið Víkings Ó. og Fjölnis á Ólafsvíkurvelli í sextándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Víkingur var fyrir leikinn í níunda sæti með átján stig en Fjölnir í öðru sæti með 27 stig. Leiknum í kvöld lauk með 2-2 jafntefli og því mikilvægt stig fyrir Víking til þess að halda sig frá…Lesa meira

true

Borgfirðingar í þriðja sæti í púttkeppni FÁÍA

Baráttan var æsispennandi um fyrsta sætið á Íslandsmóti Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) í pútti 60 ára og eldri. Mótið fór fram í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag. Fjórir keppendur voru þar jafnir í karlaflokki á 66 höggum og réðust úrslit í bráðabana. Eftir bráðabanann lá fyrir að Aðalbergur Þórarinsson hafði tryggt sér fyrsta sætið, Hafsteinn…Lesa meira

true

Sumarmót SamVest var haldið á Bíldudalsvelli

Árlegt sumarmót SamVest í frjálsum íþróttum var haldið á Völuvelli á Bíldudal laugardaginn 13. ágúst sl. Það var Héraðssambandið Hrafna-Flóki sem bauð til mótsins á Völuvelli á Bíldudal. Aðstæður á vellinum voru prýðilegar; atrennubraut langstökks og svæði fyrir hástökk og spjót eru lögð tartanefni og hlaupabrautin var mjög hörð og góð og merkt af HHF…Lesa meira

true

KSÍ veitir 453 milljónum til aðildarfélaga

Vegna þátttöku íslenska karlalandsliðsins á EM í Frakklandi mun Knattspyrnusamband Íslands greiða 453 milljónir króna til aðildarfélaga sinna. Á ársþingi KSÍ í febrúar var tilkynnt að greitt yrði sérstakt EM framlag, 300 milljónir eða um fjórðungur af greiðslu Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA. Í samræmi við auknar greiðslur frá UEFA vegna góðs gengis karlalandsliðsins á mótinu hefur…Lesa meira

true

ÍA ætlar að nýta EM framlagið í uppeldisstarfið

Eins og fram kom í Skessuhorni fyrr í vikunni ætlar KSÍ að greiða 453 milljónir krónur af EM tekjum sínum til aðildarfélaga sambandsins. KSÍ setti það skilyrði að peningunum yrði aðeins varið í knattspyrnutengda starfsemi félaganna.  Töluverð umræða hefur skapast um hvernig nýta skuli fjármunina og hafa margir gagnrýnt KSÍ fyrir að fara ekki að…Lesa meira

true

Skagakonur komnar í baráttuna um að halda sæti sinu í deildinni

Í gær fór fram leikur Selfoss og ÍA á Selfossvelli í tólftu umferð Pepsi deildar kvenna. Leikurinn var býsna mikilvægur fyrir Skagakonur en fyrir leikinn voru þær á botni deildarinnar með fimm stig. Leikurinn var nær síðasti séns ÍA að komast í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni en stígandi hefur verið í…Lesa meira

true

Hægt að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Fræðslu- og verkefnasjóð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og er frestur til að skila inn umsóknum til 1. október næstkomandi. „Fræðslu- og verkefnasjóður Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) veitir meðal annars styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í…Lesa meira

true

Kemst ÍA í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni?

Skagakonur eru í býsna erfiðri stöðu í Pepsi deild kvenna þegar aðeins sjö umferðir eru eftir. Liðið situr á botni deildarinnar með fimm stig. Skagakonur mæta liði Selfoss klukkan 18:30 í kvöld á Selfossvelli. Leikurinn er nokkuð mikilvægur fyrir Skagakonur en með sigri geta þær komist í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni.…Lesa meira

true

Hulda Birna Baldursdóttir er nýr framkvæmdastjóri KFÍA

Hulda Birna Baldursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Tekur hún við starfinu þriðjudaginn 1. nóvember næstkomandi af fráfarandi framkvæmdastjóra Haraldi Ingólfssyni. Þangað til mun hún taka þátt í einstökum verkefnum félagsins og kynna sér starfið. „Það er mjög spennandi að ganga til liðs við KFÍA á þessum tímapunkti. Ég þekki vel til félagsins, lék…Lesa meira

true

Skallagrímur fær efnilegan leikmann

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Eyjólf Ásberg Halldórsson um að leika með liðinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á komandi vetri. Eyjólfur er fæddur árið 1998 og er því 18 ára gamall. Hann er uppalinn hjá KR en lék á síðasta tímabili með liði ÍR sem varð Íslandsmeistari í drengjaflokki. Var hann valinn besti…Lesa meira