
Árlegt sumarmót SamVest í frjálsum íþróttum var haldið á Völuvelli á Bíldudal laugardaginn 13. ágúst sl. Það var Héraðssambandið Hrafna-Flóki sem bauð til mótsins á Völuvelli á Bíldudal. Aðstæður á vellinum voru prýðilegar; atrennubraut langstökks og svæði fyrir hástökk og spjót eru lögð tartanefni og hlaupabrautin var mjög hörð og góð og merkt af HHF…Lesa meira








