Íþróttir

true

Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

Spá þjálfara, fyrirliða og formanna vegna komandi tímabils í Domino‘s deildum karla og kvenna, sem og 1. deildum karla og kvenna var birt á kynningarfundi deildanna í hádeginu í dag. Snæfelli er spáð 5. sæti í Domino‘s deild kvenna en Skallagrímskonum 7. sæti. Í 1. deild karla er Skallagrími spáð 8. og næstneðsta sætinu en…Lesa meira

true

Steinlágu í lokaleiknum

Skagamenn steinlágu gegn Víkingi R., 1-5, þegar liðin mættust í lokaleik Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á laugardaginn. Það var hvorki barist við fall né um titla í leiknum á Akranesvelli, en það kom þó ekki í veg fyrir að bæði lið mættu ákveðin til leiks. Skagamenn voru ákafir í…Lesa meira

true

Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hóf tímabilið með heimaleik fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Liðið vann sér þátttökurétt í næstefstu deild eftir góðan árangur í annarri deildinni í fyrra. UMFG tók á móti b-liði Aftureldingar í sínum fyrsta leik og fyrsta hrinan var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að taka forystu í hrinunni en…Lesa meira

true

Guðrún þjálfar Skallagrím

Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur verið ráðin þjálfari Skallagríms í meistaraflokki kvenna. Mun hún því stýra liðinu í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Guðrún er 32 ára gömul og uppalin hjá Skallagrími. Hún lék með yngri flokkum félagsins og á að baki fjölda leikja í efstu deild með Skallagrími, Haukum og KR. Á sínum leikmannaferli hefur…Lesa meira

true

Skellur í síðasta leiknum

Skallagrímsmenn fengu skell í lokaleik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suðurnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik.…Lesa meira

true

Breskur leikmaður og þrjár ungar í Skallagrím

Breska körfuknattleikskonan Charlotte Thomas-Rowe mun leika með Skallagrími í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Charlotte er 24 ára að aldri og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Skólaliði Grande Prairie Regional Collage í Alberta fylki í Kanada árið 2016 og hefur síðan þá leikið með félagsliðum bæði á Ítalíu og í Danmörku. Síðasta keppnistímabil lék…Lesa meira

true

Ejub kveður Víking Ó.

Knattspyrnuþjálfarinn Ejub Purisevic er hættur sem þjálfari Víkings Ó. eftir að hafa starfað hjá félaginu og þjálfað meistaraflokk karla nær samfellt í 17 ár. „Knattspyrnudeild Víkings Ó. og Ejub Purisevic hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að ljúka 17 ára farsælu samstarfi sínu,“ segir í tilkynningu frá Víkingi Ó. Ejub kom fyrst til Víkings árið 2003…Lesa meira

true

Árni Snær áfram hjá ÍA

Árni Snær Ólafsson, markvörður og fyrirliði ÍA, hefur endurnýjað samning sinn við liðið til tveggja ára. Mun hann því leika með Skagamönnum út keppnistímabilið 2021. Árni Snær er fæddur árið 1991 og á að baki 150 leiki með meistaraflokki ÍA í deild og bikar. Hann hefur leikið veigamikið hlutverk í liði ÍA um langa hríð…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn Tindastóli, 4-1, í lokaleik Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Sauðárkróki á föstudagskvöld. Fyrir leikinn hafði Tindastóll möguleika á að tryggja sér sæti í efstu deild, að því gefnu að úrslit annarra leikja yrðu liðinu hagstæð. Skagakonur sigldu hins vegar lygnan sjó, búnar að bjarga sér frá…Lesa meira

true

Kvöddu mótið með stæl

Víkingur Ó. sigraði Njarðvík í lokaleik Inkasso deildar karla í knattspyru á Ólafsvíkurvelli á laugardag. Leikurinn var mikill markaleikur og þegar lokaflautan gall höfðu Ólafsvíkingar skorað fjögur mörk gegn tveimur mörkum gestanna. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir strax á 5. mínútu leiksins þegar Vignir Snær Stefánsson skoraði eftir hornspyrnu Grétars…Lesa meira