Íþróttir

true

„Aðalmarkmiðið að búa til góða leikmenn“

– segir Vladimir Ivankovic, þjálfari karlaliðs Snæfells   „Ég held að við verðum betri en á síðasta ári. Við höfum bætt okkur á stöðum þar sem við vorum í vandræðum í fyrra, eins og undir körfunni, fengum leikmenn til að leysa þær stöður. Að því sögðu erum við ennþá með mjög ungt lið. Strákarnir í…Lesa meira

true

Karfan að byrja

Fimm Vesturlandslið hefja leik í Íslandsmótinu í körfuknattleik í þessari viku; kvennalið Skallagríms og Snæfells leika sinn fyrsta leik í Domino‘s deildinni í kvöld, karlalið Skallagríms og Snæfells hefja leik í 1. deild á föstudaginn og þá hóf ÍA leik í 2. deild karla síðastliðinn sunnudag. Rætt er við forsvarsmenn þessara liða í Skessuhorni vikunnar…Lesa meira

true

Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

Spá þjálfara, fyrirliða og formanna vegna komandi tímabils í Domino‘s deildum karla og kvenna, sem og 1. deildum karla og kvenna var birt á kynningarfundi deildanna í hádeginu í dag. Snæfelli er spáð 5. sæti í Domino‘s deild kvenna en Skallagrímskonum 7. sæti. Í 1. deild karla er Skallagrími spáð 8. og næstneðsta sætinu en…Lesa meira

true

Steinlágu í lokaleiknum

Skagamenn steinlágu gegn Víkingi R., 1-5, þegar liðin mættust í lokaleik Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á laugardaginn. Það var hvorki barist við fall né um titla í leiknum á Akranesvelli, en það kom þó ekki í veg fyrir að bæði lið mættu ákveðin til leiks. Skagamenn voru ákafir í…Lesa meira

true

Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hóf tímabilið með heimaleik fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Liðið vann sér þátttökurétt í næstefstu deild eftir góðan árangur í annarri deildinni í fyrra. UMFG tók á móti b-liði Aftureldingar í sínum fyrsta leik og fyrsta hrinan var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að taka forystu í hrinunni en…Lesa meira

true

Guðrún þjálfar Skallagrím

Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur verið ráðin þjálfari Skallagríms í meistaraflokki kvenna. Mun hún því stýra liðinu í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Guðrún er 32 ára gömul og uppalin hjá Skallagrími. Hún lék með yngri flokkum félagsins og á að baki fjölda leikja í efstu deild með Skallagrími, Haukum og KR. Á sínum leikmannaferli hefur…Lesa meira

true

Skellur í síðasta leiknum

Skallagrímsmenn fengu skell í lokaleik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suðurnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik.…Lesa meira

true

Breskur leikmaður og þrjár ungar í Skallagrím

Breska körfuknattleikskonan Charlotte Thomas-Rowe mun leika með Skallagrími í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Charlotte er 24 ára að aldri og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Skólaliði Grande Prairie Regional Collage í Alberta fylki í Kanada árið 2016 og hefur síðan þá leikið með félagsliðum bæði á Ítalíu og í Danmörku. Síðasta keppnistímabil lék…Lesa meira

true

Ejub kveður Víking Ó.

Knattspyrnuþjálfarinn Ejub Purisevic er hættur sem þjálfari Víkings Ó. eftir að hafa starfað hjá félaginu og þjálfað meistaraflokk karla nær samfellt í 17 ár. „Knattspyrnudeild Víkings Ó. og Ejub Purisevic hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að ljúka 17 ára farsælu samstarfi sínu,“ segir í tilkynningu frá Víkingi Ó. Ejub kom fyrst til Víkings árið 2003…Lesa meira

true

Árni Snær áfram hjá ÍA

Árni Snær Ólafsson, markvörður og fyrirliði ÍA, hefur endurnýjað samning sinn við liðið til tveggja ára. Mun hann því leika með Skagamönnum út keppnistímabilið 2021. Árni Snær er fæddur árið 1991 og á að baki 150 leiki með meistaraflokki ÍA í deild og bikar. Hann hefur leikið veigamikið hlutverk í liði ÍA um langa hríð…Lesa meira