Íþróttir

true

Skagakonur öruggar

ÍA tryggði sæti sitt í Inkasso deild kvenna í knattspyrnu á föstudag. Skagakonur sigruðu Aftureldingu 2-0 á heimavelli í næstsíðustu umferð deildarinnar og eru þar með fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Skagakonur byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á 6. mínútu þegar Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Aftureldingar, varð fyrir því óláni að skora…Lesa meira

true

„Markmiðið hjá mér er að sjálfsögðu að ná alla leið í fótboltanum“

Gengi strákanna í 2. flokki karla hjá ÍA hefur verið ævintýralega gott á liðnum misserum. Þrátt fyrir að enn séu tveir leikir eftir af Íslandsmótinu hefur liðið tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og lyftir bikar á loft 14. september. Í 2. flokki spila leikmenn 17 til 19 ára. Skagaliðið þjálfar tvíeykið Sigurður Jónsson og Elinbergur Sveinsson. Þetta…Lesa meira

true

Tap í fallbaráttuslag

Skagakonur urðu af mikilvægum stigum í botnbaráttu Inkasso deildar kvenna í knattsyrnu á föstudag. Þær töpuðu 2-0 í hörkuleik og fallbaráttuslag gegn Augnabliki á útivelli. Leikurinn bar þess merki að bæði liðin eru að berjast fyrir veru sinni í deildinni. Barátan var mikil og ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa tommu eftir. Augnablikskonur fengu…Lesa meira

true

Heppnin ekki með Ólafsvíkingum

Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn liði Magna á heimavelli, 1-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Sigurinn var gestunum frá Grenivík mikilvægur, en þeir eru í harðri fallbaráttu nú í lok mótsins. Víkingur siglir hins vegar lygnan sjó um miðja deildina. Ólafsvíkingar voru nálægt því að komast yfir strax…Lesa meira

true

Annar flokkur ÍA búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn

Strákarnir í 2. flokki karla hjá ÍA eru þegar búnir að verja Íslandsmeistaratitil í fótbolta þrátt fyrir að tveir leikir séu eftir af mótinu. Það varð ljóst eftir jafnteflisleik á mánudaginn við Fylki í Árbæ; 2-2. Þetta er jafnframt í tíunda skipti sem félagið sigrar í 2. flokki karla. Í lokaleiknum gerði Sigurður Hrannar Þorsteinsson…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn fallnir

Borgnesingar eru fallnir úr 3. deild karla í knattspyrnu eftir 1-4 tap gegn Hetti/Hugin þegar liðin mættust í 19. umferð á laugardaginn. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Ivan Bubalo kom gestunum að norðan yfir strax á 8. mínútu leiksins og hann bætti öðru marki við á 38. mínútu. Cristofer Rolin minnkaði muninn fyrir…Lesa meira

true

Káramenn nánast öruggir

Káramenn eru nánast alveg öruggir með sæti sitt í 2. deild karla í knattspyrnu þegar liðið vann góðan 1-3 útisigur á KFG á föstudag. Andri Júlíusson kom Káramönnum yfir strax á 4. mínútu leiksins en Pétur Árni Hauksson jafnaði fyrir heimamenn á 18. mínútu og staðan var jöfn í hálfleik, 1-1. Snemma í síðari hálfleik…Lesa meira

true

Inn vildi boltinn ekki

Víkingur Ó. og Fram gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 19. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Framvelli á föstudagskvöld. Leikurinn fór fremur rólega af stað en þegar leið á fyrri hálfleikinn voru það Ólafsvíkingar sem sköpuðu sér hættulegri færi. Guðmundur Magnússon átti gott skot að marki á 35. mínútu úr…Lesa meira

true

Töpuðu gegn erkifjendunum

Skagamenn máttu sætta sig við 2-0 tap gegn KR þegar liðin mættust í 19. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gær. KR-ingar stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik, héldu boltanum vel og ógnuðu marki ÍA án þess þó að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Skagamenn lágu til baka og freistuðu…Lesa meira