
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hóf leik á úrtökumóti fyrir LPGA mótaröðina í golfi í gær. Leikið er í Kaliforníu í Bandaríkjunum, en um er að ræða fyrsta stig af úrtökumótanna af þremur. Valdís fór fyrsta hringinn á pari vallarins, 72 höggum. Hún fékk þrjá fugla, þrjá skolla og tólf pör á hringnum.…Lesa meira








