Íþróttir

true

Víkingur Ó. færir sig upp um þrjú sæti

Víkingur Ó. sigraði Aftureldingu 2-0 í tíundu umferð fyrstu deildar karla á föstudag. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Mosfellingar byrjuðu leikinn ákafir og voru meira með boltann á upphafsmínútunum. Ólsarar voru þó hvergi að gefa eftir og mættu gestunum á pari í baráttunni. Hvorugt liðið náði að skila boltanum í netið og voru þau jöfn þegar…Lesa meira

true

Kári fékk dýrmæt stig

Kári vann öruggan sigur á botnliði Tindastóls þegar liðin mættust í 10. umferð í annarri deild karla í Akraneshöllinni í gærkveldi. Er þetta þriðji sigur Káramanna það sem af er af tímabilinu og dýrmæt stig í vegarnesti hjá þeim félögum í botnbaráttunni, nú þegar líða fer á seinni hluta Íslandsmótsins. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti…Lesa meira

true

Skagamenn gerður jafntefli á útivelli

ÍA gerði markalaust jafntefli við Víking R. í heldur bragðdaufum leik í 11. umferð Pepsi Max deild karla í gær. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli í Reykjavík. Skagamenn byrjuðu leikinn mun beittari en náðu þó aldrei að skapa sér alvöru færi á upphafsmínútunum. Eftir kröftuga byrjun gestanna fóru heimamenn hægt og bítandi að taka völdin…Lesa meira

true

Tap hjá Kára

Káramenn átti lítið erindi í Leikni F. á laugardag þegar liðið heimsótti þá síðarnefndu fyrir austan. Leiknir F. sigraði bragðdaufa Káramenn 5-1 í níundu umferð í annarri deild karla í knattspyrnu.  Það var Daniel Garcia Blanco sem skoraði fyrstu tvö mörkin fyrir heimamenn. Fyrsta kom á 29. mínútu og seinna markið kom þremur mínútum síðan.…Lesa meira

true

Bjarki komst ekki áfram á Evrópumóti áhugamanna

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson komst ekki áfram á Evrópumóti áhugamanna sem fram fór í vikunni. Um gríðarlega erfitt mót er að ræða þar sem leikið var á Diamond Country vellinum í Austurríki. Bestu áhugakylfingar veraldar tóku þátt en alls voru 144 keppendur, sem eru í sætum 288 eða ofar á heimslista áhugakylfinga, skráðir til leiks. Bjarki…Lesa meira

true

Landsmót fimmtíu ára og jafnvel tvöfalt það

Landsmóti UMFÍ 50+ lauk í Neskaupstað í gær. Í lokagreininni var keppt í stígvélakasti sem felur í sér að þátttakendur kasta stígvéli eins langt og þeir geta. Keppnisgreinar fóru fram á íþróttavellinum í Neskaupstað í úrvali af íslensku veðri; í gegnum súldarúða og smávegis roki en þess á milli brast á með glampandi sól og…Lesa meira

true

Jafntefli í bragðdaufum leik

Víkingur Ó. gerði jafntefli gegn botnliði Magna á Grenivíkurvelli um helgina í níundu umferð fyrstu deildar karla í fótbolta. Vindurinn í Grenivík gerði leikmönnum erfitt fyrir að ná upp almennilegu spili stóran hluta af leiknum en boltinn skiptist nokkuð jafnt á milli liðanna án þess þá að þau sköpuðu sér einhver almennileg marktækifæri. Markalaust var…Lesa meira

true

ÍA stúlkur úr leik í bikarkeppninni

ÍA er dottið úr Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir að hafa tapað gegn Fylki í 8-liða úrslitum á Akranesvelli á föstudagskvöldið. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og var jafnræði með þeim í byrjun, en það átti eftir að breytast. Á 17. mínútu var dæmt víti á Skagastúlkur. Ída Marín Hermannsdóttir fór á punktinn og…Lesa meira

ÍA keppir í Mjólkurbikarnum í kvöld

Skagastelpur keppa við Fylki í 8-liða úrslitum í Mjólkurbikar kvenna í kvöld á Akranesvelli. Allir leikir ÍA í bikarnum til þessa hafa verið spennandi og því má búast við hörkuleik liðanna í kvöld. Í 16-liða úrslitum lögðu ÍA stúlkur Þrótt R í miklum markaleik, 3-2, og þar á undan  slógu þær FH úr keppni í…Lesa meira

true

Skallagrímur heldur áfram að tapa

Ekki náðu Skallagrímsmenn að knýja fram sigur er þeir fengu Kórdrengi í heimsókn í Borgarnes í gærkvöldi. Kórdrengir voru áberandi meira með boltann í leiknum og sóttu stöðugt að heimamönnum alveg frá fyrstu mínútu. Yohance Marshall skoraði fyrsta mark gestanna á fjórðu mínútu. Stuttu seinna urðu Skallarnir fyrir því óláni að skora sjálfsmark og voru…Lesa meira