Íþróttir

true

Þrjár sömdu við ÍA

Þrjár ungar og efnilegar knattspyrnukonur hafa skrifað undir samning við Knattspyrnufélag ÍA. Erna Björt Elíasdóttir, Anna Þóra Hannesdóttir og Selma Dögg Þorsteinsdóttur sömdu allar við Skagaliðið á dögunum. Þær eru allar fæddar árið 2002 og uppaldar hjá félaginu. Selma Dögg lék átta leiki með ÍA í Inkasso deildinni síðasta sumar, Anna Þóra lék sex leiki…Lesa meira

true

Takmarkanir á íþrótta- og æskulýðsstarfi

Vegna fjölda fyrirspurna hefur heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi: „Kennsla í leik- og grunnskólum fer nú fram í…Lesa meira

true

Frestað fram í miðjan maí

Íslandsmótið í knattspyrnu og bikarmótið mun hefjast um miðjan maí, að því gefnu að samkomubanni ljúki um miðjan aprílmánuð. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum í gær. Staðan verður endurmetin um miðjan apríl þegar frekari upplýsingar liggja fyrir og ef til þess kemur að samkomubann verði framlengt. „Þannig er gert ráð…Lesa meira

true

Keppni hætt í körfunni

Ekki verður keppt meira í Íslandsmótinu í körfuknattleik á yfirstandandi keppnistímabili. Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum í dag að hætta keppni í tveimur efstu deildum karla og kvenna vegna Covid-19 veirunnar. Áður hafði verið ákveðið að hætta keppni í neðri deildum og Íslandsmóti yngri flokka. Engir Íslandsmeistarar verða krýndir í meistaraflokkum karla og kvenna…Lesa meira

true

Driplað í gegnum ástandið

Nú þegar erfitt er að halda úti æfingum í körfuknattleik, sem öðrum íþróttum, hefur Körfuknattleikssamand Íslands ákveðið að láta ástandið ekki koma í veg fyrir æfingar. „Það er mikilvægt í því ástandi sem er núna að krakkar jafnt sem fullorðnir næri nú vel líkama og sál með góðri æfingu og því er um að gera…Lesa meira

true

Knattspyrnuleikjum frestað

Öllum knattspyrnuleikjum á vegum Knattspyrnusambands Íslands hefur verið frestað í ljósi samkomubanns sem lýst var yfir á föstudag. Stjórn KSÍ ákvað því að fresta öllum leikjum á vegum sambandsins, landsliðsæfingum og tengdum viðburðum á meðan samkomubann er í gildi. Stjórnin hvatti aðildarfélög sín til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu…Lesa meira

true

Keppni hætt í mörgum deildum og flokkum

Íslandsmótinu í körfuknattleik er lokið í 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla, unglingaflokki karla, stúlknaflokki, drengjaflokki, 10., 9., 8., og 7. flokkum drengja og stúlkna sem og í minnibolta 9, 10 og 11 ára drengja og stúlkna. Enginn deildar- eða Íslandsmeistari verður krýndur í þessum deildum og flokkum. Mótanefnd og stjórn Körfuknattleikssambands Íslands…Lesa meira

true

Valdís Þóra náði sínum fjórða besta árangri

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr GL lauk í dag leik á Investec South AFrican Women’s Open mótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Í allan dag var Valdís í baráttunni um sigurinn en varð að lokum að láta sér sjöunda sætið lynda, sem engu að síður er frábær árangur. Á golfvefnum kylfingur.is er greint frá…Lesa meira

true

Borgnesingar lágu gegn toppliðinu

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum þegar þeir heimsóttu topplið Hattar austur á Egilsstaði í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn náðu að hanga í Hetti í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn öll vold á vellinum í síðari hálfleik og sigruðu að lokum örugglega, 85-66. Heimamenn höfðu yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta…Lesa meira

true

Snæfellingar burstaðir

Snæfellingar steinlágu gegn sterku liði Breiðabliks, 114-69, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Kópavogi í gærkvöldi. Blikar réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og náðu snemma öruggri forystu. Snæfellingar áttu slakan upphafsfjórðung á meðan Breiðablik lék á als oddi. Heimamenn leiddu með 34 stigum gegn tólf eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar…Lesa meira