
Hið árlega aðventumót púttara í Borgarbyggð fór fram 17. desember síðastliðinn í Eyjunni í Brákarey. Til leiks mættu ellefu konur og þrettán karlar. Keppt var með og án forgjafar. Konurnar voru í feikna stuði þennan dag og skildu karlana hreinlega eftir. Guðrún Helga Andresdóttir vann kvennaflokkinn án forgjafar á 56 höggum. Önnur varð Anna Ólafsdóttir…Lesa meira








