Íþróttir

true

Björn Bergmann genginn til liðs við Molde

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við norska úrvalsdeildarliðið Molde til þriggja ára. Björn verður þar með annar Íslendingurinn sem semur við Molde á árinu en Eiður Smári Gudjohnsen samdi við liðið fyrr á árinu. Björn Bergmann kemur frítt til Molde en hann lék síðast með liði Wolverhampton Wanderers í ensku b-deildinni. Hann hefur verið að…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu sinn þriðja leik í röð

Skagamenn er á miklu skriði þessa dagana en þeir unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir mættu Breiðabliki í tíundu umferð Pepsi deild karla í gærkvöldi. Skagamenn sigruðu leikinn sem fram fór á Kópavogsvelli 1 – 0 með marki Garðars Gunnlaugssonar. Með sigrinum hoppuðu Skagamenn upp um tvö sæti og eru nú í áttunda…Lesa meira

true

Snæfellsbæingur vann til verðlauna á Norðurlandamóti Öldunga

Í byrjun þessa mánaðar fór Norðurlandamót öldunga í frjálsum íþróttum fram í Óðinsvéum í Danmörku. Alls kepptu 535 á mótinu frá öllum Norðurlandaþjóðunum. Sjö keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd á mótinu og var einn þeirra Kristófer Sæland Jónasson úr Snæfellsbæ. Kristófer, sem er 81 árs, keppti í spjótkasti og kastþraut. Þess má geta að Kristófer…Lesa meira

true

Tvö laus pláss í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum

Stjórn Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum auglýsir laus til umsóknar tvö liðspláss í deildinni á komandi tímabili, veturinn 2017. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið sem etja kappi í sex greinum hestaíþrótta á fimm kvöldum í febrúar og mars. Hvert lið sendir þrjá keppendur til leiks í hverja…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli í Vesturbænum

Fyrr í dag mættust KR og Víkingur Ólafsvík í tíundu umferð Pepsi deildar karla á KR-vellinum í Vesturbænum. Fyrir leikinn voru Víkingar í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig en KR í tíunda með níu stig. Willum Þór Þórsson stýrði liði KR liðinu í fyrsta sinn á þessu tímabili í deildinni eftir að hann var…Lesa meira

true

Leik ÍA og Breiðabliks frestað

Leikur ÍA og Breiðabliks í tíundu umferð Pepsi deildar karla sem átti að fara fram í dag klukkan 16:00 á Kópavogsvelli hefur verið frestað. Leikurinn fer fram á morgun klukkan 19:15. Ástæðan fyrir seinkuninni er sú að Blikar eru nýkomnir heim frá Lettlandi þar sem þeir kepptu Evrópuleik við Jelgava. Eftir slíka ferð eiga þeir…Lesa meira

true

Samantekt frá Landsmóti hestamanna

Landsmót hestamanna var haldið í vægast sagt mögnuðu umhverfi Hóla í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí og gekk allt vel að sögn bæði gesta og mótshaldara. Um átta þúsund manns mættu á svæðið til að horfa á knapa leika listir sínar með hestum sínum og var samhljómur meðal mótsgesta að fyrirkomulagið á keppninni…Lesa meira

true

Fella þurfti niður Jökulmíluna vegna veðurs

Jökulmílan er ein lengsta hjólreiðakeppni fyrir einstaklinga sem haldin er hér á landi. Hún er haldin á Snæfellsnesi ár hvert. Hjólaðar eru rétt rúmlega 100 enskar mílur, eða 162 km. Lagt er af stað frá Grundarfirði, hjólað til vesturs gegnum Rif og þaðan fyrir Snæfellsjökul, til baka eftir suðurströnd Snæfellsness og norður Vatnaleið áður en…Lesa meira

true

Kvennalið Víkings vann Skínanda

Í síðustu viku lék Víkingur Ólafsvík við Skínanda í fyrstu deild kvenna A – riðli. Leiknum lauk með 1 – 0 sigri Víkings og markaskorarinn Samira Suleman skoraði eina mark leiksins. Víkingur er nú í þriðja sæti riðilsins með 15 stig, stigi á eftir ÍR sem er í fyrsta sæti. Næsti leikur Víkings er í…Lesa meira

true

Körfuboltasumarið á ferð um Vesturland

Snemmsumars setti Körfuknattleikssamband Íslands á laggirnar Körfuboltasumarið, verkefni sem ætlað er að efla iðkun körfuknattleiks yfir sumartímann. Nær það yfir sumrin 2016 og 2017 og er styrkt af þróunarsjóði FIBA, Alþjóða körfuknattleikssambandsins. Einn liður verkefnisins felur í sér að A-landsliðsfólk Íslands heimsæki þau félög sem bjóða upp á sumaræfingar eða námskeið. Dagana 4.-9. júlí verður…Lesa meira