Íþróttir

true

Baráttuleikur í boltanum í kvöld

Skagamenn bjóða Selfyssinga velkomna þegar liðin mætast í tíundu umferð Inkassodeildar á Akranesvelli í kvöld. Skagamenn eru í bullandi baráttu um að komast í Pepsídeildina að nýju. Á sama tíma heyja Selfyssingar sína eigin baráttu í neðri hluta deildarinnar og því stig mikilvæg báðum liðum. Þrátt fyrir tap í síðasta leik hjá ÍA þá skipa…Lesa meira

true

Skagastúlkur spila heimaleik síðdegis

ÍA fær Hamrana í heimsókn þegar 8. umferð Inkassodeildar kvenna hefst í kvöld. Skagastelpur gerðu það gott í síðasta leik þegar þær unnu Sindra 11-0 og með sigri í kvöld og þremur stigum geta þær bætt stöðu sína í deildinni enn frekar. Þær sitja nú í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig á meðan toppliðið,…Lesa meira

true

Unnu til silfurverðlauna á Norðurlandamótinu

Marinó Þór Pálmason sem spilar með Skallagrími í Borgarnesi keppti með félögum sínum í U16 landsliði Íslands á Norðurlandamóti yngri landsliða um síðustu helgi, en mótið fór fram í Kisakallio í Finnlandi. Drengirnir unnu fjóra af fimm leikjum sínum sem skilaði þeim öðru sæti á mótinu og silfrinu. Eistarnir fóru ósigranðir í gegnum mótið og…Lesa meira

true

Bjarki Pétursson gerir það gott á Evrópumóti áhugamanna

Bjarki Pétursson frá Golfklúbbi Borgarness endaði í 21. sæti á Evrópumóti áhugamanna í Hollandi sem hófst á miðvikudag í síðustu viku. Alls tóku 144 keppendur þátt í mótinu og spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum. Bjarki spilaði fyrsta daginn á 71 höggi, næsta dag á 75. Þriðji dagurinn var hans besti þar sem hann…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið var á laugardaginn

Síðastliðinn laugardag fór Snæfellsjökulhlaupið fram í áttunda sinn. Hlaupnir eru 22 kílómetrar frá Arnarstapa yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Keppendur voru að þessu sinn 164 og hefur fjöldi þeirra aukist mikið frá því það var haldið í fyrsta skiptið, en þá voru keppendur 50. Á síðasta ári var reyndar metfjöldi þegar 211 hlauparar þreyttu…Lesa meira

true

Víkingur hafði betur í Vesturlandsslagnum

Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍA í Vesturlandsslag í Inkassodeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Leikurinn var spilaður á nýja gervigrasvellinum í Ólafsvík. Heimamenn unnu 2-1 sigur og mega þeir umfram annað þakka þéttri vörn sigurinn. Það var Alexander Helgi Sigurðarson sem kom Víkingi yfir eftir stundarfjórðungs leik. Gonzalo Leon jók síðan forystu heimamanna á 78.…Lesa meira

true

Markaveisla Skagakvenna á Akranesvelli

Skagakonur áttu frábæran dag þegar þær tóku á móti Sindra á Akranesvelli í Inkasso-deild kvenna í gær. ÍA gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk gegn gestunum sem verma botnsætið í deildinni. Ljóst var í upphafi leiks að mikilvægt var fyrir heimamenn að tryggja þrjú stig til að halda sér í toppbaráttunni. Það var…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur spilaður annað kvöld í Ólafsvík

ÍA sækir Víking Ó. heim í sannkölluðum Vesturlandsslag í Inkasso-deild karla í knattspyrnu á morgun, föstudaginn 29. júní klukkan 19:15. Leikurinn fer fram á Ólafsvíkurvelli þar sem nýr gervigrasvöllur var tekinn í gagnið fyrir nokkrum vikum. Skagamenn tróna nú á toppi deildarinnar með 20 stig. Ólafsvíkingar eru þó ekki langt á eftir en þeir eru…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum

Skagamenn hafa lokið þátttöku sinni í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu eftir 1-0 tap gegn Pepsi deildar liði FH í átta liða úrslitum. Liðin mættust á Akranesvelli í gærkvöldi. FH-ingar skoruðu eina mark leiksins strax á 3. mínútu. Atli Guðnason fékk boltann úti á vinstri kanti. Hann leit upp og sendi frábæra lága fyrirgjöf fyrir markið,…Lesa meira

true

ÍA lá fyrir Fylki

Skagakonur máttu játa sig sigraðar fyrir Fylki, 4-1, í sjöttu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag. Leikið var á Fylkisvelli í Árbænum í Reykjavík. Heimaliðið kom mjög ákveðið til leiks og náði forystunni strax á 6. mínútu þegar Marija Radojicic skoraði. Skagkonur komust betur inn í leikinn eftir því sem leið á en…Lesa meira