Íþróttir

true

Úrslit frá úrtökumóti Dreyra og Glaðs

  Sameiginlegt úrtökumót Hestamannafélagsins Dreyra og Hestamannafélagsins Glaðs fyrir komandi Landsmót hestamanna fór fram á Æðarodda um helgina. Jafnframt var mótið gæðingamót Dreyra en þátttakendur í barna- og unglingaflokki Glaðs fengu einnig að taka þátt í því móti. „Mótið fór afskaplega vel fram, þátttaka var ágæt en þó hefði verið gaman að sjá fleiri félaga…Lesa meira

true

Ingi Þór hættur hjá Snæfelli

Körfuknattleiksþjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson hefur látið af störfum hjá Snæfelli. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins síðasta miðvikudag. Ingi Þór þykir einn af bestu körfuknattleiksþjálfurum landsins. Hann hóf störf hjá Snæfelli árið 2009 og hefur þjálfað báða meistaraflokka félagsins, auk þess að halda utan um starf yngri flokka félagsins. Hann á að baki…Lesa meira

true

Ísland í efsta sætið

Ísland tók toppsætið í sínum riðli þegar það vann góðan og mikilvægan sigur á Slóvenum 2-0 í undankeppni HM kvenna á Laugardalsvelli í gær. Með sigrinum eru stelpurnar komnar upp fyrir Þýskaland í riðlinum sem situr í öðru sæti með 15 stig beint á eftir Íslandi sem er með 16 stig eftir sigur gærkvöldsins. Tveir…Lesa meira

true

Keppt í kraftlyftingum og bekkpressu á Akranesi

Íslandsmeistaramót öldunga og unglinga í kraftlyftingum fór fram á Akranesi um helgina. Mótið var fámennt en góðmennt og góð stemning meðal keppenda og áhorfenda, að því er fram kemur á Facebook-síðu Kraftlyftingafélags Akraness. Í bekkpressu í Junior flokki mætti Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness til leiks. Hann lyfti 155 kg sem er hans besta…Lesa meira

true

Gott gengi Kára heldur áfram

Kári gefur hvergi eftir í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu. Liðið vann 3-2 sigur á Leikni frá Fáskrúðsfirði í miklum baráttuleik í Akraneshöll í gær. Gestirnir höfðu undirtökin í upphafi leiks og komust yfir strax á 5. mínútu með marki frá Degi Inga Valssyni. Eftir því sem leið á komust Káramenn betur og betur…Lesa meira

true

Borgnesingar sækja liðsstyrk

Kvennalið Skallagríms í körfubolta er á fullu um þessar mundir að styrkja lið sitt fyrir komandi átök á næsta tímabili. Liðið hefur þegar samið við Ara Gunnarsson til að þjálfa liðið áfram og nú hafa tvær stúlkur einnig skrifað undir og því skuldbundið sig félaginu næsta vetur. Árnína Lena sem kom seint inn í liðið…Lesa meira

true

Víkingur Ó. klifrar upp töfluna

Ólafsvíkingar lyftu sér upp í fjórða sæti 1. deildar karla í knattspyrnu eftir 3-1 útisigur á Þrótti R. á föstudagskvöld. Þróttarar fengu óskabyrjun því Hreinn Ingi Örnólfsson kom þeim yfir strax á sjöttu mínútu. Hornspyrna var skölluð þvert fyrir markið þar sem Hreinn var réttur maður á réttum stað og átti ekki í vandræðum að…Lesa meira

true

ÍA fór létt með ÍR

Skagamenn halda áfram góðri byrjun sinni í 1. deild karla í knattspyrnu þetta sumarið. Á föstudagskvöld tóku þeir á móti ÍR og unnu öruggan 3-0 sigur. ÍA var mun sterkara liðið allan fyrri hálfleikinn en tókst þó ekki að brjóta ísinn fyrr en á 39. mínútu þegar þeir fengu aukaspyrnu úti á vinstri kanti. Ragnar…Lesa meira

true

Norðurálsmótið hafið

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu fyrir 7. flokk drengja hófst á Akranesi núna rétt fyrir hádegi. Venju samkvæmt safnaðist hópurinn saman á Stillholti og gekk skrúðgöngu í Akraneshöllina, þar sem mótið var formlega sett. Fyrstu leikirnir hefjast núna í hádeginu og mótið stendur fram á sunnudag. Um 1500 knattspyrnumenn framtíðarinnar frá 36 knattspyrnufélögum taka þátt…Lesa meira

true

Jafntefli við Gana í síðasta leik fyrir HM

Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana í vináttulandsleik í knattspyrnu í gær. Ísland komst yfir strax á 6. mínútu þegar Kári Árnason skoraði með laglegum skalla eftir hornspyrnu. Ísland stýrði leiknum án þess þó að skapa sér mörg færi í fyrri hálfleiknum. Það var ekki fyrr en á 40. mínútu að Íslendingar fengu almennilegt færi…Lesa meira