Íþróttir

true

Styrktarmót Valdísar Þóru fór fram um helgina

Styrktarmót Valdísar Þóru Jónsdóttur kylfings fór fram á Garðavelli laugardaginn 4. júní með þátttöku um 170 kylfinga. Veðrið lék við kylfinga og völlurinn var í frábæru standi að sögn þátttakenda og kylfinga. Helstu úrslit voru eftirfarandi:   Kvennaflokkur Ragnheiður Jónasdóttir 42 punktur Bára Valdís Ármannsdóttir 37 punktar Anna S Carlsdóttir 36 punktar betri á síðustu…Lesa meira

true

Björn Bergmann til IFK Norrköping?

Fotbolti.net greindi frá því fyrir helgi að samkvæmt áreiðanlegum heimildum væri knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðsson á leið til sænsku meistaranna í IFK Norrköping. Þessi 25 ára framherji kom til baka úr erfiðum meiðslum á nýloknu tímabili. Hann náði að spila 14 leiki með Wolverhampton Wanderers, eða Úlfunum, í ensku fyrstu deildinni á þessu ári en…Lesa meira

true

Víkingur í öðru sæti eftir sigur í gær

Víkingur Ólafsvík fékk Fylki í heimsókn í Pepsi deild karla síðdegis í gær. Víkingur hefur farið afar vel af stað á meðan Fylkismenn hafa verið í miklu basli og ekki enn unnið leik í Íslandsmótinu í sumar. Fylkir byrjaði leikinn af miklum krafti og komust strax í fín færi. Vindurinn spilaði sinn þátt í leiknum…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í erfiða stöðu eftir tapleik

Það var mikið undir þegar ÍA og Þróttur léku sjöunda leik sinn í Pepsi deild karla á Akranesvelli í gærkvöldi. Fyrir leikinn voru bæði lið með fjögur stig; aðeins tveimur stigum meira en botnlið Fylkis. Fyrst dró til tíðinda í leiknum á sjöttu mínútu leiksins þegar dómarateymi leiksins þurfti að gera skiptingu. Valdimar Pálsson, dómari…Lesa meira

true

Sigruðu í skotkeppni vetrarins

Skotfélag Vesturlands hefur staðið fyrir svokallaðri „Silhouette“ mótaröð eftir áramót í inniaðstöðu félagsins í Brákarey í Borgarnesi. Hún fer þannig fram að skotið er frá öxl standandi á 25 metra færi með 22. cal rifflum. Skotið er á mörk sem eru með mismunandi lagi og fæst stig fyrir að hitta einhversstaðar í markið. Skotið er…Lesa meira

true

Vélhjólaíþróttafélag Akraness sigraði í tveimur flokkum

Hópur keppenda frá Vélhjólaíþróttafélagi Akraness tók þátt í árlegu torfæruhjólakeppninni Klaustur Off-road Challenge sem haldin var í fjórtánda sinn laugardaginn 28. maí. Keppnin var haldin í landi Ásgarðs sem er rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur. 248 manns tóku þátt í mótinu í ár og þar af tíu manns frá VÍFA í fjórum liðum. Keppnin er sex…Lesa meira

true

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á laugardaginn

Nú á laugardaginn 4. júní fer hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram. Hlaupið verður á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis og eins og venjulega má búast við að þúsundir kvenna komi saman til að njóta hreyfingar og góðs félagsskapar.  Ekki spillir fyrir að veðurspáin á laugardaginn er frábær fyrir allt landið. Það stefnir í…Lesa meira

true

Dregið í Borgunarbikar kvenna

Dregið var í 16 liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu í síðustu viku. Leikdagar verða helgina 11.-12. júní. Þegar dregið er í 16 liða úrslit bikarsins er úrvalsdeildarliðum bætt í pottinn. Í ljós kom að ÍA mætir Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði og fer leikurinn fram sunnudaginn 12. júní. Aðrar viðureignir eru eftirfarandi: Bikarmeistarar Stjörnunnar…Lesa meira

true

Eiga sér fyrirmyndir í fjölskyldunni

Körfuboltabræðurnir Þorgeir og Sigurður Aron Þorsteinssynir eru búsettir í Borgarnesi. Bræðurnir eru efnilegir spilarar og hafa báðir verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár. Þorgeir er fæddur árið 1999 og er því 17 ára gamall en Sigurður er tveimur árum yngri. Báðir leika þeir stöðu miðherja og hafa hæðina með sér. Þorgeir er 205 sentímetrar…Lesa meira

true

Akranesleikarnir fóru fram um helgina

Akranesleikarnir í sundi fóru fram um síðastliðna helgi í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. 265 sundmenn frá tíu félögum tóku þátt á mótinu að þessu sinni en það er aðeins færra en síðustu ár. Mótið er stigakeppni milli liða þar sem fimm fyrstu keppendurnir í hverri grein fá stig og í boðsundi tvöfaldast svo stigafjöldinn. Sundfélag Akraness…Lesa meira