Íþróttir

true

Bjarki og Gísli fögnuðu sigri á MAC Championship

Bjarki Pétursson kylfingurinn knái úr Borgarnesi, Gísli Sveinbergsson og liðsfélagar þeirra í Kent State fögnuðu um helgina sigri á MAC Championship mótinu sem fram fór í bandaríska háskólagolfinu í Ohio fylki. Á golfvefnum Kylfingur.is er sagt frá því að upprunalega hafi átt að spila þrjá hringi, en þriðja hringnum var aflýst vegna veðurs og töldu…Lesa meira

true

Alexandrea með brons á heimsmeistaramóti í bekkpressu

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir vann á sunnudaginn til bronsverðlauna á heimsmeistaramótinu í bekkpressu sem fram fer í Tókýó í Japan. Alexandrea keppir í -57 kg flokki unglinga í klassískri bekkpressu. Í fyrstu lyftu tók hún 67,5 kg og í þeirri annarri voru 72,5 kg á stönginni. Þau fóru upp og bætti hún þar með sinn…Lesa meira

true

Skagamenn á toppinn eftir 1-0 sigur á Breiðabliki

Nú rétt í þessu var að ljúka toppbáráttuleik ÍA og Breiðabliks í Pepsí Max deildinni í fótbolta. Spilað var á nýjum gervigrasvelli í Kópavogi. Leiknum lauk með 1-0 sigri ÍA, en eina mark leiksins var skorað í uppbótartíma. Það gerði Einar Logi Einarsson eftir fyrirgjöf frá Stefáni Teiti Þórðarsyni. Skagamenn voru mun sterkari aðilinn framan…Lesa meira

true

Skagahraðlestin á fullri ferð

Skagamenn lögðu FH á Akranesvelli í gær með tveimur mörkum gegn engu. Bjarki Steinn Bjarkason skoraði bæði mörk leiksins. Var þetta fyrsti sigur ÍA á FH í efstu deild karla í 14 ár, eða síðan 2005. Skagamenn byrjuðu leikinn í gær af miklum krafti og komust yfir strax á 3. mínútu eftir leiftursnögga skyndisókn. Árni…Lesa meira

true

Skagamenn styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar

Nú rétt í þessu var meistaraflokkur karla hjá ÍA að tryggja sér 2:0 sigur á FH í fjórðu umferð Pepsí Max deildarinnar. Leikurinn var spilaður á Akranesvelli. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í öðru og þriðja sæti með sjö. Hetjan í kvöld var Bjarki Steinn Bjarkason sem skoraði bæði mörkin fyrir Skagamenn. Hið fyrra á…Lesa meira

true

Skagakonur áfram í bikarnum

Skagakonur eru komnar áfram í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu eftir 0-1 sigur á FH í gærkvöldi. Leikið var á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Um hörkuleik var að ræða þar sem bæði lið sýndu mikla baráttu og fengu ágætis marktækifæri. Hvorugu liðinu tókst þó að skora í fyrri hálfleik og staðan því markalaus þegar liðin gengu til…Lesa meira

true

Bjarki í úrvalslið Mið-Ameríku deildar

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi sem leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio fylki í Bandaríkjunum var á dögunum valinn í úrvalslið Mið-Ameríku deildarinnar eftir líðandi tímabil í háskólagolfinu. Það eru þjálfarar þeirra níu skóla sem leika í deildinni sem velja í úrvalsliðið og því er góð viðurkenning fyrir Bjarka að komast í liðið en…Lesa meira

true

Bjarni Guðmann í bandaríska háskólaboltann

Ungi framherjinn úr Skallagrími, Bjarni Guðmann Jónsson, mun leika í bandaríska háskólaboltanum á næsta tímabili og segir því skilið við uppeldisfélagið sitt í bili að minnsta kosti. Hann mun hefja háskólanám við Fort Hays State University í Kansas og leika þar með liðinu í NCAA II deildinni. Bjarni reyndist Skallagrímsmönnum gífurlega mikilvægur í Domino’s deildinni…Lesa meira

true

Kári á toppnum

Káramenn gerðu sér ferð suður með sjó á föstudaginn og mættu Þrótti frá Vogum í annarri umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Fyrri hálfleikur var markalaus og það var ekki fyrr en á 59. mínútu leiksins að ísinn var brotinn. Heimamenn í Þrótti V. fengu þá vítaspyrnu. Pape Mamadou Faye fór á punktinn og honum…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta leik Skagakvenna

Kvennalið ÍA tók á móti FH síðastliðinn föstudag í sínum fyrsta heimaleik og jafnframt fyrsta leik á tímabilinu. Gestirnir úr FH eru nýliðar í Inkasso deildinni eftir að hafa fallið niður úr efstu deild fyrir ári síðan en á sama tíma voru Skagastúlkur hársbreidd frá því að koma sér upp og hefja nú nýtt áhlaup…Lesa meira