Íþróttir

true

Kári á toppnum

Káramenn gerðu sér ferð suður með sjó á föstudaginn og mættu Þrótti frá Vogum í annarri umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Fyrri hálfleikur var markalaus og það var ekki fyrr en á 59. mínútu leiksins að ísinn var brotinn. Heimamenn í Þrótti V. fengu þá vítaspyrnu. Pape Mamadou Faye fór á punktinn og honum…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta leik Skagakvenna

Kvennalið ÍA tók á móti FH síðastliðinn föstudag í sínum fyrsta heimaleik og jafnframt fyrsta leik á tímabilinu. Gestirnir úr FH eru nýliðar í Inkasso deildinni eftir að hafa fallið niður úr efstu deild fyrir ári síðan en á sama tíma voru Skagastúlkur hársbreidd frá því að koma sér upp og hefja nú nýtt áhlaup…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu Val á Hlíðarenda

ÍA og Valur áttust við í þriðju umferð Pepsí Max deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Spilað var á gervigrasinu á Hlíðarenda og voru aðstæður býsna góðar; sól, heiðskýrt, lítilsháttar gola en fremur kalt. Fyrirfram hafði verið búist við að leikurinn yrði brekka fyrir Skagamenn, en sú varð ekki raunin. 2-1 sigur var staðreynd og um…Lesa meira

true

Gunnhildur og Hlynur valin í úrvalsliðin

Lokahóf KKÍ var haldið í hádeginu í dag var tilkynnt um val á bestu leikmönnum ársins í Domino‘s deildum karla og kvenna. Vestlendingar eiga þar tvo fulltrúa, því Gunnhildur Gunnarsdóttir og Hlynir Bæringsson voru bæði valin úr úrvalslið vetrarins. Úrvalslið Domino‘s deildar kvenna er þannig skipað: Gunnhildur Gunnarsdóttir úr Snæfelli, Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum,…Lesa meira

true

Stórt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Álftnesingum í annarri umferð 3. deildar karla í fótbolta á í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli og var vel mætt í brekkuna. Borgnesingar byrjuðu leikinn betur og voru áræðnir við mark Álftnesinga strax frá upphafi. Dæmd var rangstaða á heimamenn snemma í hálfleiknum þegar þeir héldu…Lesa meira

true

Fjórir Vestlendingar í æfingahóp

Þrjár körfuknattleikskonur af Vesturlandi hafa verið valdar í æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Þetta eru systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur úr Snæfelli og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr Skallagrími. Einnig má nefna Hildi Björgu Kjartansdóttur sem fjórða Vestlendinginn í hópnum. Snæfell er uppeldisfélag Hildar sem hefur verið að spila í atvinnumannaboltanum á Spáni síðustu ár. Benedikt…Lesa meira

true

Finnur Jónsson fer til Keflavíkur

Finnur Jónsson, fyrrum þjálfari Skallagríms í körfuknattleik karla, færir sig um set og hefur nú samið við Keflavík um að gegna starfi aðstoðarþjálfara karlaliðs félagsins. Þar verður hann Sverri Þór Sverrissyni þjálfara innan handar á næsta tímabili ásamt því að koma að yngri flokka starfi hjá félaginu. „Gríðarleg ánægja er með að hafa fengið Finn…Lesa meira

true

Setti átta Íslandsmet

Kári Geirlaugsson úr ÍA setti hvorki fleiri né færri en átta Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu í garpasundi sem haldið var í Laugardalslaug fyrstu helgi maímánaðar. Hann keppti í 50, 100, 200, 400 og 800 m skriðsundi, 50 og 100 m baksundi og 100 m fjórsundi í flokki 70-74 ára garpa. Kári setti Íslandsmet í öllum greinunum…Lesa meira

true

Snæfellingar sigruðu í Lengjubikarnum

Snæfellingar eru sigurvegarar í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir sigur á GG í úrslitaleiknum á sunnudag. Leikurinn fór fram á Grindavíkurvelli. Hann var bæði jafn og spennandi og augljóst að bæði lið vildu vinna. Snæfellingar fengu draumabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Stykkishólmsliðinu yfir strax á 10. mínútu leiksins. Þannig var staðan…Lesa meira

true

Borgnesingar byrja á sigri

Skallagrímsmenn hófu leik í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn þegar þeir tóku á móti Einherja á Skallagrímsvelli. Sumarið byrjar vel hjá Borgnesingum, sem sigruðu leikinn 2-1. Einherji náði forystunni á 22. mínútu leiksins þegar Jareo Jolon Bennett skoraði fyrir liðið. Fimm mínútum fyrir hálfleik jafnaði Cristofer Rolin fyrir Borgnesinga og staðan 1-1 þegar…Lesa meira