Íþróttir

true

Uppáhalds minningar stuðningsmanna ÍA

Skagamenn eiga ríka og merkilega sögu í knattspyrnu. Þeir hafa unnið fjölda titla og skapað marga atvinnu- og landsliðsmenn. Stuðningsmenn Skagans eiga fjölmargar minningar af fallegum og tilfinningaríkum augnablikum. Í dag sendi Knattspyrnufélag ÍA frá sér myndband  sem ber yfirskriftina „Við erum ÍA“ þar sem stuðningsmenn rifja upp þeirra uppáhalds augnablik og leiki. Myndbandið er…Lesa meira

true

Enn sigrar Víkingur á heimavelli

Í gærkvöldi mættust lið Víkings Ó. og Þróttar í níundu umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var fjörugur og fimm mörk voru skoruð. Fyrir leikinn var Víkingur í fimmta sæti með 14 stig en Þróttar í næst-neðsta með sjö stig. Víkingur vann gríðarlega sterkan sigur á Þrótti 3 – 2 þrátt fyrir að hafa lent tveimur…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaup við erfiðar aðstæður

Sjötta Snæfellsneshlaupið fór fram á laugardaginn. Líkt og áður var hlaupið ræst frá Arnarbæ á Arnarstapa, hlaupið yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Alls eru hlaupnir um 22 kílómetrar við misjafnar aðstæður, að sögn Fannars Baldursson sem sér um hlaupið ásamt konu sinni Rán Kristinsdóttur. Fannar sagði að aðstæður hafi veirð erfiðar á Jökulhálsinum en…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir komst upp um deild í karla- og kvennaflokki

Íslandsmót golfklúbba 2016 fór fram um liðna helgi. Mótið hófst á föstudegi og lauk í gær. Mótið hlaut nýtt nafn í vor en áður hét það Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins kepptu á mótinu og margar hörkuviðureignir litu dagsins ljós. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Golfklúbbur…Lesa meira

true

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum haldið í Borgarnesi

Hestamannafélagið Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka í Borgarnesi dagana 14. – 17. júlí n.k. Svanhildur Svansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mótsins. „Mótsnefnd mun kappkosta að mótið verði hið glæsilegasta og fari fram við bestu aðstæður sem svæðið býður upp á. Boðið verður upp á hesthúspláss og hey og einnig verður seldur spænir á svæðinu. Tjaldsvæði…Lesa meira

true

Skagamenn unnu KR á lokasekúndu leiksins

Fyrr í kvöld mættust lið ÍA og KR á KR-velli. Bæði lið hafa farið illa af stað í deildinni og leikurinn því mikilvægur fyrir bæði lið. Fyrir leikinn var KR í áttunda sæti með níu stig en Skagamenn voru í næst neðsta með fjögur stig. Skagamenn unnu leikinn á dramatískan hátt á lokasekúndunni með rosalegu…Lesa meira

true

Sveitakeppni GSÍ fer fram um helgina

Íslandsmót golfklúbba hefst á morgun, föstudaginn 24. júní, en keppnin fékk nýtt nafn í vor og heitir mótið nú Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins verða í eldlínunni með sínum klúbbum og að venju má búast við hörkuviðureignum. Keppt er í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Í karlaflokki hefur Golfklúbbur…Lesa meira

true

Rallað um heiðir á Ströndum á laugardaginn

Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur stendur fyrir annarri umferð Íslandsmótsins í rallý um næstu helgi. Að þessu sinni verður haldið til Hólmavíkur og haldin keppni í samstarfi við öfluga heimamenn. Á laugardag hefst keppni á Tröllatunguheiði en um hana verður ekið til skiptis við Steinadalsheiði. Áætlað er að keppni ljúki kl. 17.40 með tilkynningu úrslita og verðlaunaafhendingu við…Lesa meira

true

Kemst Ísland í 16 – liða úrslit EM á morgun?

Ísland lék sinn annan leik á Evrópumótinu í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Leikurinn fór fram á Stade Vélodrome í Marseille. Mikil stemming var hjá Íslendingum á leiknum og sungu þeir og klöppuðu allan leikinn. Báðir íþróttafréttamenn Skessuhorns voru á svæðinu og urðu m.a. vitni að því þegar Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr víti á 40. mínútu.…Lesa meira

true

Gísli og Berglind Íslandsmeistarar í holukeppni

Gísli Sveinbergsson úr golfklúbbnum Keili og Berglind Björnsdóttir úr GR fögnuðu sigri á KPMG-bikarnum, Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni. Þetta eru fyrstu Íslandsmeistaratitlar þeirra í þessari keppni sem fór fram í fyrsta sinn árið 1988. Gísli lagði Aron Snæ Júlíusson úr GKG í úrslitaleiknum 4/3 en góð byrjun Gísla lagði grunninn að sigrinum. Andri Már…Lesa meira