
Skallagrímskonur unnu góðan sigur á Stjörnunni, 67-63, í fjörugum leik í Domino‘s deild kvenna á miðvikudagskvöld. Leikið var í Borganesi. Skallagrímskonur komu ákveðnar til leiks. Þær höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 18-15. Stjarnan minnkaði muninn í eitt stig í upphafi annars leikhluta. Borgarnesliðið náði góðum leikkafla og…Lesa meira








