Íþróttir

true

Gerðu gott mót á Reykjavík International Games

Reykjavik International Games fóru fram í Laugardalslaug um helgina. Um er að ræða eitt stærsta sundmót sem haldið hefur verið á Íslandi, þar sem tæplega 400 sundmenn frá sjö löndum tóku þátt. Sundfélag Akraness átti tíu keppendur í mótinu. „Persónuleg met voru slegin og áttu krakkarnir mörg góð sund yfir helgina,“ segir í tilkynningu á…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Snæfells í höfn

Á föstudagskvöld fengu Snæfellingar loks leikinn sem þeir hafa beðið eftir í allan vetur, þegar þeir tóku á móti Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik. Hólmarar léku afar vel og höfðu heldur yfirhöndina þó leikurinn hafi verið mjög jafn og spennandi á löngum köflum. Að lokum fór svo að Snæfellingar höfðu betur með 89…Lesa meira

true

Borgnesingar rændir sigrinum

Skallagrímur heimsótti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Um háspennuleik var að ræða en eftir æsispennandi lokamínútur tókst ÍR-ingum að stela sigrinum, 96-95. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Eftir eftir um fimm mínútna leik náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 31-19. Skallagrímsmenn minnkuðu muninn…Lesa meira

true

Káramenn styrkja Minningarsjóð Arnars Dórs

Káramenn ætla að leggja Minningarsjóði Arnars Dórs lið þegar þeir mæta Selfyssingum í Fótbolti.net mótinu í Akraneshöllinni næstkomandi laugardag, 26. janúar. Aðgöngumiðar verða valfrjálsir og gilda annars vegar sem happdrættismiði auk þess sem honum fylgir kaffi og kruðerí. Allur ágóði miðasölunnar mun renna til Minningarsjóðs Arnars Dórs. Þeir sem ekki komast á leikinn geta engu…Lesa meira

true

Eins stigs tap í dramatískum leik

Snæfellskonur þurftu að játa sig sigraðar eftir æsispennandi framlengdan leik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi, 88-87. Leikið var í Garðabæ. Stjarnan hafði undirtökin í fyrsta leikhluta og níu stiga forskot að honum loknum, 22-13. Snæfellskonur byrjuðu annan fjórðunginn af miklum krafti og minnkuðu muninn í eitt stig áður en hann var hálfnaður,…Lesa meira

true

Svekkjandi tap Skallagríms

Skallagrímur heimsótti Keflavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu yfirhöndina lengi vel, en Keflvíkingar náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn í lokafjórðungnum, þar sem þær jöfnuðu metin, knúðu fram framlengingu og stálu  sigrinum á endasprettinum. Lokatölur urðu 61-54 fyrir Keflavík. Skallagrímskonur byrjuðu heldur brösulega og hittu illa úr skotum sínum.…Lesa meira

true

Snæfell mætir Val í undanúrslitum bikarsins

Snæfell og Valur munu etja kappi í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik. Dregið var í bikarnum í hádeginu í dag. Sigurvegari þeirrar viðureignar mun mæta sigurvegaranum úr viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar í bikarúrslitaleiknum. Í karlaflokki mætast annars vegar Stjarnan og ÍR en hins vegar KR og Njarðvík. Bikarúrslitavika KKÍ hefst í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 13. febrúar…Lesa meira

true

Svekkjandi tap hjá Grundfirðingum

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í körfubolta tók á móti liði Breiðabliks laugardaginn 19. janúar. Breiðablik er á toppi 3. deildar á meðan heimamenn voru í sjöunda sæti fyrir leikinn. Heimamenn komu ákveðnir til leiks og ætluðu að selja sig dýrt og var toppliðið í mestu vandræðum með grimma Grundfirðina. Grundarfjörður leiddi 21-19 eftir fyrsta leikhluta og í…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn úr leik í bikarnum

Leikið var í átta liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn heimsóttu ÍR og þurftu að játa sig sigraða eftir æsispennandi leik, 86-79. Borgnesingar hafa því lokið þátttöku sinni í bikarnum í þetta skiptið. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þá náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með 13 stigum eftir upphafsfjórðunginn, 30-17.…Lesa meira

true

Góður sigur ÍA

Skagamenn unnu góðan sigur á Stál-úlfi, 126-109, þegar liðin mættust í elleftu umferð í 2. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu betur, höfðu heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en ÍA var aldrei verið langt undan. Stál-úlfur leiddi með sex stigum eftir upphafsfjórðunginn, 27-33. Skagamenn þjörmuðu að gestunum í…Lesa meira