Íþróttir

true

Snæfellingar töpuðu heima

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Selfossi, 58-72, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Snæfell byrjaði betur og komst í 8-0 áður en gestirnir að sunnan skoruðu fyrstu stigin sín. Áfram voru Hólmarar sterkari og leiddu 12-6 þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta. Þá tóku gestirnir…Lesa meira

true

Nálægt því að stela sigrinum

Skallagrímur mátti játa sig sigraðan, 90-83, eftir jafnan og spennandi leik gegn Grindavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Borgnesingar voru betri í upphafi leiks, nýttu sér slakan varnarleik heimamanna og leiddu 15-7 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá náðu Grindvíkingar smá rispu, komust yfir og höfðu fjögurra…Lesa meira

true

Snæfell aftur á sigurbraut

Snæfell vann góðan útisigur á baráttuglöðu liði Breiðabliks, 72-82, í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Breiðablik skoraði fyrstu stigin en Snæfell tók yfirhöndina og komst í 3-13 og höfðu síðan tólf stiga forskot eftir upphafsfjórðunginn, 16-28. Breiðabliksliðið kom ákveðið inn í annan leikhluta og minnkaði muninn jafnt og þétt á meðan Snæfell átti…Lesa meira

true

Skallagrímskonur steinlágu gegn Val

Það var fremur þunnskipað lið Skallagríms steinlá gegn Val á útivelli, 83-43, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Liðið lék án Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur og munaði um minna. Valskonur tóku afgerandi forystu snemma í fyrsta leikhluta, komust í 21-6 eftir sjö mínútna leik og leiddu 26-11 eftir upphafsfjórðunginn. Leikurinn hélt áfram með…Lesa meira

true

Jón Gísli Eyland til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA samdi í gær við Jón Gísla Eyland Gíslason. Gengur hann til liðs við ÍA frá Tindastóli. Jón Gísli er fæddur árið 2002 og hefur spilað 37 leiki með meistaraflokki Tindastóls og skorað í þeim eitt mark. Þá á hann að baki 13 leiki með U17 ára landsliði Íslands og þrjá leiki með U16.…Lesa meira

true

Gabríel Sindri til Skallagríms

Skallagrímur samdi á dögunum við hinn unga og efnilega leikstjórnanda Gabríel Sindra Möller. Hann er 19 ára gamall og kemur frá Njarðvík. Fyrir áramót lék hann með Hamri í 1. deild karla á venslasamningi frá Njarðvík, þar sem hann skoraði 10,9 stig að meðaltali í leik. Gabríel á að baki fjölmarga leiki með yngri landsliðum…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímur tók á móti Íslandsmeisturum KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik að kvöldi þrettándans. Var það fyrsti leikur Skallagríms í deildinni eftir jólafrí og máttu Borgnesingar sætta sig við tap, 78-94. Skallagrímsmenn áttu erfitt uppdráttar í fyrsta leikhluta. KR-ingar mættu hins vegar ákveðnir til leiks og tóku öll völd á vellinum strax í upphafi.…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu gegn Val

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Val, 78-70, þegar liðin mættust í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna eftir jólafrí á laugardaginn var. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík. Valskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks en Snæfell var þó ekki langt undan. Heimaliði náði hins vegar góðri rispu undir lok fyrsta leikhluta og hafði 16 stiga…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu í kaflaskiptum leik

Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hófst að nýju eftir jólafrí sl. laugardag. Skallagrímskonur heimsóttu Hauka og máttu sætta sig við tap eftir nokkuð kaflaskiptan leik, 72-69. Borgnesingar höfðu undirtökin í byrjun leiks en Haukar náðu yfirhöndinni um miðjan fyrsta leikhluta og góður sprettur undir lok fjórðungsins skilaði þeim ellefu stiga forskoti, 28-17. Haukakonur juku forskotið…Lesa meira

true

„Ísland á alltaf sinn stað í hjarta mínu“

– segir körfuknattleikskonun Kristen McCarthy í Stykkishólmi   Kristen McCarthy kom fyrst til Íslands haustið 2014 til að spila með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Hún heillaðist af landi og þjóð og eftir að hafa reynt fyrir sér á meginlandi Evrópu sneri hún aftur í Stykkishólm fyrir rúmu ári síðan. Hún lítur í…Lesa meira