Fréttir

true

Háskólar landsins eru í fordæmalausri stöðu

„Ljóst er að þær fjárhæðir sem háskólum landsins eru ætlaðar samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi standa ekki undir því mikilvæga starfi sem skólarnir sinna,“ segir í yfirlýsingu frá rektorum allra íslensku háskólanna. „Háskólar í nágrannaríkjum okkar fá tvöfalt hærri framlög á hvern nemanda og endurspeglar það raunverulegan kostnað háskólastarfs. Til þess að ná meðaltali framlaga í OECD-ríkjunum…Lesa meira

true

Jólaverslun fór af stað með krafti

Samkvæmt könnun Rannsóknaseturs verslunarinnar fór jólaverslunin í nóvember af stað með meiri krafti en áður. „Black Friday virðist hafa haft hvetjandi áhrif á verslun. Þannig jókst sala á stórum raf- og heimilistækjum um fjórðung frá sama mánuði í fyrra og aukning í sölu minni raftækja, eins og sjónvörpum, var um 15%. Húsgagnaverslun var einnig blómleg…Lesa meira

true

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar afgreidd með tekjuafgangi

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 ásamt þriggja ára áætlun áranna 2018-2020 á fundi sínum 13. desember síðastliðinn. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að á árinu 2017 verði rekstrarniðurstaða samstæðu A og B hluta jákvæð um 35,5 milljónir króna. Svipuð rekstrarniðurstaða er fyrir þrjú árin þar á eftir samkvæmt áætlun. Áætlað er að…Lesa meira

true

Prestsbústaður lagfærður og talinn íbúðarhæfur

Í Skessuhorni nýverið var frétt þess efnis að biskup hafi í byrjun þessa mánaðar tilkynnt sóknarnefndum í Staðastaðarprestakalli um þá ákvörðun sína að aflétta búsetuskyldu sóknarprests á kirkjustaðnum Staðastað. Séra Þorvaldur Víðisson biskupsritari segir að ákvörðunin feli í sér að sóknarprestur geti nú um sinn ákveðið hvar búseta hans verður. Hluti sóknarbarna í Staðastaðarsókn á…Lesa meira

true

Kólnar í veðri og éljagangur framundan

Vegagerðin vill koma því á framfæri að spáð er afgerandi breytingum í veðri til morguns. Él verða í dag á sunnanverðum Vestfjörðum og kólnar almennt séð talsvert til morguns. Í fyrramálið má reikna með að snjór eða hálka verði á flestum vegum um vestanvert landið.Lesa meira

true

Engispretta á ferðinni í Borgarnesi

Starfsmenn Borgarverks í Borgarnesi hafa nú í vörslu sinni sex sentimetra langa engisprettu sem barst til landsins og upp í Borgarnes með varahlutasendingu frá Suður-Kóreu. Hafliði Gunnarsson vélamaður hjá fyrirtækinu segir í samtali við Skessuhorn að engispretta þessi hafi komið skríðandi á móti starfsmönnum þegar umbúðir voru teknar utan af beltakeðju. „Þetta er ótrúlega lífsseigt…Lesa meira

true

Valdís á pari eftir fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hóf leik í dag á lokaúrtökumótinu í Mónakó fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET mótaröðina. Á kylfingi.is segir að hún hafi leikið hringinn á 72 höggum eða pari vallar og sé nú jöfn í 32. sæti. „Hún fékk tvo fugla og tvo skolla á mjög stöðugum og…Lesa meira

true

Birtu niðurstöður um hönnun nýbygginga á Alþingisreit

Einar Kristinn Guðfinnsson, formaður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit, tilkynnti í dag um niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit. Í fyrsta sæti varð tillaga frá Arkitektar Studio Granda. Í öðru sæti var tillaga frá T.ark arkitektum og í þriðja sæti tillaga frá PKdM arkitektum. Sýning á öllum tillögum sem nefndinni bárust…Lesa meira

true

Fjölmenni leitaði að jólasveininum í Garðalundi

Leitin að jólasveininum fór fram í Garðalundi á Akranesi í gærkvöldi. Viðburðurinn var vel heppnaður og mætti fjöldi fólks, með vasaljósin að vopni og tók þátt í leitinni sem stýrt var af Felix Bergssyni. Þrátt fyrir mikla mannmergð í skógræktinni myndaðist skemmtileg stemning og mikil gleði meðal þeirra sem tóku þátt. Þetta er í fyrsta…Lesa meira

true

Jólagleði í Garðalundi um helgina

Nú um helgina verður sannkölluð jólastemning í Garðalundi á Akranesi. Bæði í kvöld, föstudaginn 16. og á morgun, laugardaginn 17. desember, verður boðið upp á svokallaða Jólagleði í Garðalundi, þar sem ýmislegt verður um að vera, allt í anda jólanna. Þrjár konur sjá um skipulagningu Jólagleðinnar; þær Hlédís Sveinsdóttir, Margrét Blöndal og Sara Hjördís Blöndal.…Lesa meira