
Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, stendur yfir þessa vikuna. Dagskráin hófst á mánudagsmorgun og stendur alla daga til klukkan 23. Henni lýkur svo síðdegis á morgun með kveðju útvarpsstjóra og veislu fyrir alla þá sem að útvarpinu hafa komið. Dagskrá Útvarps Óðals er fjölbreytt og koma nemendur úr öllum árgöngum skólans að dagskrárgerð.…Lesa meira








