Fréttir

true

Hvessir um hádegisbil við Hafnarfjall

Með skilum lægðar sem fer hratt norður yfir landið hvessir um tíma og hlýnar jafnframt um hádegisbil í dag. Á veginum við Hafnarfjall má gera ráð fyrir hviðum allt að 30-40 m/s á milli kl. 11 og 13. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er nú hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið. Snjóþekja er á Fróðárheiði.Lesa meira

true

Risastyrkur til leitar að áfallastreitugeninu

Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið 240 milljóna króna styrk frá Evrópska Rannsóknarráðinu (European Research Council) til rannsókna á erfðum heilsufars í kjölfar streituvaldandi atburða.  „Styrkurinn er mikil viðurkenning á vísindalegu framlagi Unnar Önnu og samstarfsmanna hennar við Háskóla Íslands og Íslenska erfðagreiningu,“ segir í tilkynningu. „Rannsóknin snýst fyrst…Lesa meira

true

Viggó gefur út barnabókina Konungborna bólubaslið

„Í konungsríki, óralangt í burtu, býr undurfögur prinsessa sem er elskuð og dáð af öllum þegnum sínum. Líf hennar virðist fullkomið þangað til hún vaknar dag einn og þarf að takast á við risavaxið vandamál sem kollvarpar allri veröld hennar. En er vandamálið eins skelfilegt og hún telur það vera?“ Meira má ekki upplýsa hér,…Lesa meira

true

Gert ráð 500 milljóna króna tekjuafgangi Borgarbyggðar næstu fjögur árin

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í síðustu viku var fjárhagsáætlun næsta árs til síðari umræðu og afgreiðslu sem og tillaga að fjögurra ára fjárhagsáætlun 2017-2020 fyrir Borgarbyggð og undirfyrirtæki. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri kynnti tillöguna og þær breytingar sem hafa orðið á henni frá fyrri umræðu. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á árinu…Lesa meira

true

Vel gengur með reiðhallarbyggingu í Ólafsvík

Vinna við reiðhöllina í Snæfellsbæ gengur mjög vel og hafa félagar í hesteigendafélaginu Hring verið duglegir undanfarið. Þeim barst góður liðsstyrkur um síðustu helgi. Þá mættu félagar úr Lionsklúbbi Ólafsvíkur og aðstoðuðu þá við smíðina. Var um þessa hlegi klárað að setja járnið á þak byggingarinnar. Veðrið hefur einnig verið hesteigendum hliðhollt því þó bæði…Lesa meira

true

Enn er tekið við tilnefningum um Vestlending ársins

Enn á ný mun Skessuhorn gangast fyrir vali á Vestlendingi ársins. Í lok hvers árs hefur verið kallað eftir tilnefningum frá almenningi um einstakling sem verðskuldað gæti þetta sæmdarheiti fyrir framgöngu sína í starfi og/eða leik. Skilyrði er að sá sem tilnefndur er sé búsettur á Vesturlandi. Jafnframt er óskað eftir einni setningu þar sem…Lesa meira

true

Rökkurró í Hofsstaðaskógi

Foreldrafélögin á sunnanverðu Snæfellsnesi héldu í samvinnu við Sagnaseið og Svæðisgarðinn á Snæfellsnesi, Rökkurró í Hofsstaðaskógi 11. desember síðastliðinn. Boðið var upp á kaffi, heitt kakó og piparkökur. Farið var í skemmtilega leiki, sungið og dansað. Að sjálfsögðu mætti Stekkjastaur, dansaði og söng nokkur lög með krökkunum, en að endingu fengu svo allir krakkarnir mandarínur…Lesa meira

true

Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar gerir ráð fyrir afgangi

Fjárhagsáætlun A- og B-hluta sjóða Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2017 var samþykkt á  fundi bæjarstjórnar 8. desember síðastliðinni.  Í henni er gert ráð fyrir að heildartekjur sveitarfélagsins verði 973,5 m.kr. á næsta ári. Laun eru áætluð 506,7 m.kr. og önnur rekstrargjöld 331,4 m.kr. Afskriftir verða 49,3 m.kr. Rekstrarniðurstaða er því jákvæð um 85,6 m.kr. fyrir fjármagnsliði.…Lesa meira

true

Sjómenn felldu samningana

Sjómenn hafa í atkvæðagreiðslu fellt með miklum mun kjarasamninga sem skrifað var undir 11.-15. nóvember síðastliðinn. Ótímabundið verkfall stéttarfélaganna hefst því á ný í kvöld kl. 20:00. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á milli SFS og Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) mun liggja fyrir næstkomandi föstudag, 16. desember.Lesa meira

true

Krapasnjór á fjallvegum

Krapasnjór og snjókoma er nú á Holtavörðuheiði og hálkublettir og éljagangur á Bröttubrekku og Vatnaleið. Aðrar leiðir á Vesturlandi eru að mestu greiðfærar. Lægð kemur úr suðaustri í dag og fer norður yfir landið. Suðvestan- og vestanlands snjóar í hægum vindi ofan 100-150 m og slyddukrapi verður á láglendi. Lægðinni fylgir bleyta á öllu landinu.…Lesa meira