Fréttir

true

Laufabrauðsgerð og gleði á Brákarhlíð

Það var glatt á hjalla hjá íbúum og starfsfólki Brákarhlíðar í Borgarnesi í gær þegar starfsfólk á Hvammi boðaði til laufabrauðsútskurðar og baksturs. Heimilisfólk og dagdvalarfólk tók virkan þátt ásamt því að nokkrir ættingjar og fyrrverandi starfsmenn Brákarhlíðar mættu til þátttöku. Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við völd eins og myndirnar…Lesa meira

true

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík taka enn á ný höndum saman um Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Meðal verðlaunahafa frá því 2005, þegar verðlaunin voru fyrst afhent, má nefna Landsnámssetrið í…Lesa meira

true

Spölur kaupir vélsóp til að þrífa göngin

Fyrirtækið Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hefur fest kaup á og tekið í notkun nýjan vélsóp sem verður notaður til að vinna gegn rykmyndun í göngunum. Rykmyndun er sérlega hröð að vetrinum þegar margir vegfarendur aka bílum á negldum hjólbörðum. Sem kunnugt er eru göngin þrifin með stórvirkum ryksugu- og þvottabílum að hausti…Lesa meira

true

Borgfirskir kórar létu gott af sér leiða

Í gærkvöldi héldu þrír borgfirskir kórar aðventutónleika í Reykholtskirkju. Kórarnir sungu bæði einir og saman undir stjórn Viðars Guðmundssonar, við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar og Heimis Klemenzsonar. Þetta voru Reykholtskórinn, Freyjukórinn og Söngbræður. Afar góð mæting var á tónleikana en yfir 400 manns nutu þess þegar kórarnir stilltu saman strengi sína. Söngurinn tókst vel og…Lesa meira

true

Jólaútvarp NFGB fer í loftið eftir helgina

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi verður sent út frá Óðali dagana 12.-16. desember næstkomandi. Allir bekkir Grunnskólans í Borgarnesi koma að dagskrárgerðinni. Handritagerð fyrir jólaútvarpið fór fram í skólanum sem sérstakt verkefni í íslensku og er metið til einkunnar. Sem fyrr er dagskráin með fjölbreyttu sniði. Útsendingar hefjast með ávarpi útvarpsstjóra kl. 10 að…Lesa meira

true

Jólasamvera í Garðakaffi á morgun

Laugardaginn 10. desember verður jólaleg samverustund í Garðakaffi á Safnasvæðinu á Akranesi. Þar verða í boði dýrindis smákökur og annað gúmelaði, heitt kakó og kaffi. Hægt verður að föndra jólaföndur, skreyta piparkökur og skoða gömul jólakort. Tónlistarfólkið Valgerður og Doddi sér um að leika jólatónlist fyrir gesti og bjóða einnig upp á “opinn hljóðnema”  frá…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar fluttur í stærra húsnæði

Fiskmarkaður Sæfellsbæjar hefur nú verið fluttur í nýtt tæplega þúsund fermetra húsnæði að Ennisbraut 34 í Ólafsvík. Fiskmarkaðurinn, sem stofnaður var í desember 2015, var áður í 300 fm húsnæði við Snoppuveg. Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar segir að reksturinn hafi gengið vel á fyrsta starfsárinu. „Eldra húsnæðið var að springa utan af okkur og…Lesa meira

true

Úthlutað úr Minningasjóði Björns Rúnarssonar

Úthlutað hefur verið úr Minningasjóði Björns Rúnarsson frá Þverfelli Lundarreykjadal. Björn var fæddur 30. nóvenber 1975 og lést 11. júní 1995. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja  bráðveik og langveik börn og ungmenni. Úthlutað er úr sjóðnum á fæðingardegi Björns. Frá stofnun sjóðsins hafa 23 einstaklingar hlotið styrki. Þann 30. nóvenber  síðastliðinn var úthlutað úr sjóðnum…Lesa meira

true

Skoða möguleika á menningarsetri í Brákarey

Um þessar mundir er verið að kanna möguleika þess að koma á fót menningarsetri í Brákarey í Borgarnesi. Að því verkefni stendur Sigríður Þóra Óðinsdóttir, eða Sigþóra eins og hún er gjarnan kölluð, myndlistarkona frá Einarsnesi, ásamt Sigursteini Sigurðssyni arkitekt í Borgarnesi. „Við komum til með að vinna sameiginlega alla hugmyndavinnu. Sigursteinn sér um að…Lesa meira

true

Ný Caterpiller jarðýta í flota Borgarverks

Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í gær, er Guðjón Tómasson starfsmaður Borgarverks að reynsluaka nýjustu vélinni í flota fyrirtækisins. Vél þessi er af gerðinni Caterpillar D6M, 20 tonna jarðýta sem kostar hingað komin tæpar 40 milljónir króna. Þetta er jafnframt fyrsta jarðýtan hér á landi með innbyggðu gps- og slopekerfi. Þarna er Guðjón að…Lesa meira