Fréttir

true

Valdís Þóra leikur á úrtökumóti í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, tekur nú þátt í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina, en mótið fer fram í Marokkó. Nú er fyrsta hring af fjórum lokið á mótinu og spilaði Valdís Þóra á 76 höggum eða 4 höggum yfir pari og er jöfn í 17. sæti þegar nokkrir kylfingar eiga eftir að…Lesa meira

true

Engey prufusiglt við Tyrklandsstrendur

Eins og fram hefur komið er HB Grandi með þrjá nýja ískfisktogara í smíðum í skipasmíðastöðinni Celíktrans í Tyrklandi, þeirri sömu og framleiddu uppsjávarveiðiskipin Venus og Víking. Fyrsti togarinn, Engey RE, verður afhentur kaupendum fyrir jólin og var skipinu prufusiglt í þessari viku og reyndist vel. Með í för voru meðal annarra skipstjórinn á Engey…Lesa meira

true

Opna fyrir umsóknir til ljósleiðaravæðingar

Fjarskiptasjóður hefur opnað fyrir umsóknir vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli. Verkefnið hófst formlega síðastliðið vor með 450 milljón króna styrkveitingu fjarskiptasjóðs til 14 sveitarfélaga sem hlutskörpust urðu í samkeppni um þann styrk. Önnur fjármögnun kemur frá þeim sem tengjast sveitarfélögunum sjálfum og fjarskiptafyrirtækjum eftir atvikum.…Lesa meira

true

Laufabrauðsgerð og gleði á Brákarhlíð

Það var glatt á hjalla hjá íbúum og starfsfólki Brákarhlíðar í Borgarnesi í gær þegar starfsfólk á Hvammi boðaði til laufabrauðsútskurðar og baksturs. Heimilisfólk og dagdvalarfólk tók virkan þátt ásamt því að nokkrir ættingjar og fyrrverandi starfsmenn Brákarhlíðar mættu til þátttöku. Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við völd eins og myndirnar…Lesa meira

true

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík taka enn á ný höndum saman um Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Meðal verðlaunahafa frá því 2005, þegar verðlaunin voru fyrst afhent, má nefna Landsnámssetrið í…Lesa meira

true

Spölur kaupir vélsóp til að þrífa göngin

Fyrirtækið Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hefur fest kaup á og tekið í notkun nýjan vélsóp sem verður notaður til að vinna gegn rykmyndun í göngunum. Rykmyndun er sérlega hröð að vetrinum þegar margir vegfarendur aka bílum á negldum hjólbörðum. Sem kunnugt er eru göngin þrifin með stórvirkum ryksugu- og þvottabílum að hausti…Lesa meira

true

Borgfirskir kórar létu gott af sér leiða

Í gærkvöldi héldu þrír borgfirskir kórar aðventutónleika í Reykholtskirkju. Kórarnir sungu bæði einir og saman undir stjórn Viðars Guðmundssonar, við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar og Heimis Klemenzsonar. Þetta voru Reykholtskórinn, Freyjukórinn og Söngbræður. Afar góð mæting var á tónleikana en yfir 400 manns nutu þess þegar kórarnir stilltu saman strengi sína. Söngurinn tókst vel og…Lesa meira

true

Jólaútvarp NFGB fer í loftið eftir helgina

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi verður sent út frá Óðali dagana 12.-16. desember næstkomandi. Allir bekkir Grunnskólans í Borgarnesi koma að dagskrárgerðinni. Handritagerð fyrir jólaútvarpið fór fram í skólanum sem sérstakt verkefni í íslensku og er metið til einkunnar. Sem fyrr er dagskráin með fjölbreyttu sniði. Útsendingar hefjast með ávarpi útvarpsstjóra kl. 10 að…Lesa meira

true

Jólasamvera í Garðakaffi á morgun

Laugardaginn 10. desember verður jólaleg samverustund í Garðakaffi á Safnasvæðinu á Akranesi. Þar verða í boði dýrindis smákökur og annað gúmelaði, heitt kakó og kaffi. Hægt verður að föndra jólaföndur, skreyta piparkökur og skoða gömul jólakort. Tónlistarfólkið Valgerður og Doddi sér um að leika jólatónlist fyrir gesti og bjóða einnig upp á “opinn hljóðnema”  frá…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar fluttur í stærra húsnæði

Fiskmarkaður Sæfellsbæjar hefur nú verið fluttur í nýtt tæplega þúsund fermetra húsnæði að Ennisbraut 34 í Ólafsvík. Fiskmarkaðurinn, sem stofnaður var í desember 2015, var áður í 300 fm húsnæði við Snoppuveg. Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar segir að reksturinn hafi gengið vel á fyrsta starfsárinu. „Eldra húsnæðið var að springa utan af okkur og…Lesa meira